Lífið

Fimmta meðferðin varð til þess að stóri draumurinn rættist

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Dóra stendur á tímamótum og fagnar áfanganum.
Dóra stendur á tímamótum og fagnar áfanganum. Dóra Jó

Dóra Jóhannsdóttir, leikstjóri og leikari, segist vita það fyrir víst að hafði hún ekki hafið sína fimmtu meðferð fyrir þremur árum hefði draumur hennar um að leikstýra Skaupinu einn daginn aldrei orðið að veruleika. Dóra fagnar þremur árum edrú í dag.

„Þvílíkt ferðalag! Það óskar sér enginn að vera með fíknisjúkdóm og fyrir 3 árum var ég á mjög slæmum stað, orðin mjög veik. Vinkona mín Dóra Einarsdóttir minnti mig nýlega á að á þessum degi fyrir 3 árum sagði ég henni buguð og brotin á leið í fimmtu meðferðina að mig dreymdi um að leikstýra Skaupinu einn daginn,“ segir Dóra.

„Ég veit það fyrir víst að ég hefði aldrei getað uppfyllt þann draum ef ég hefði ekki náð að verða edrú.“

Dóra segist í bata í dag og deilir með fylgjendum sínum á Facebook hvað hafi hjálpað henni í baráttunni. Nefnir hún tólf spora samtök með ókeypis og stórkostleg prógrömm fyrir þá sem glíma við fíkn eða meðvirkni.

„SÁÁ, Vogur og Vík gerðu mikið fyrir mig og loks meðferðin í Svíþjóð, sem er því miður búið að loka. Eftir það fór ég í endurhæfingu sem var mér nauðsynlegt enda skilur neysla mann eftir með mjög laskað taugakerfi.“

Þá segist hún hafa eytt fúlgum fjár í sálfræðiþjónustu sem hún viti að sé ekki á allra færi. En það sé nauðsynlegt fyrir hana að vinna sig úr áföllum.

„Í dag sé ég skýr tengsl milli áfallastreitu, meðvirkni, athyglisbrests og fíknisjúkdóma. Lykillinn að bata mínum í dag er að fylgja innsæinu, biðja um hjálp, hlusta á þarfir mínar, vera með skýr mörk og sjálfsvirði sem ég set ekki í hendur annarra og nærandi tenging við annað fólk.“

Dóra vonast til að geta haldið áfram að vaxa og þroskast til að geta verið til staðar fyrir aðra.

„Ég finn fyrir gríðarlegu þakklæti og hlakka til að halda áfram að vera edrú og fá að upplifa skýrt þetta fáránlega fyndna, fallega og sorglega ferðalag sem lífið er.“


Tengdar fréttir

„Bjóst aldrei við svona góðum viðbrögðum“

Dóra Jóhannsdóttir, leikstjóri áramótaskaupsins árið 2022, segist alls ekki hafa átt von á jafn góðum viðbrögðum við skaupinu og raun ber vitni. Hún segir ferlið hafa gengið einstaklega vel en um er að ræða hennar fyrsta leikstjórnarverkefni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×