Erlent

For­ysta Rússa í öryggis­ráðinu „versti brandari í heimi“

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Handtökuskipun var nýverið gefin út á hendur Vladimírs Pútín Rússlandsforseta. Nú situr Rússland í stóli forseta öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
Handtökuskipun var nýverið gefin út á hendur Vladimírs Pútín Rússlandsforseta. Nú situr Rússland í stóli forseta öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Getty/Contributor

Rússar sitja nú í stóli forseta öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þrátt fyrir mótmæli Úkraínumanna og annarra landa. Síðast þegar Rússar gegndu sama embætti réðust þeir inn í Úkraínu.

Bandaríkjamenn segjast ekki geta komið í veg fyrir setu Rússa en fimmtán lönd, meðlimir í ráðinu, skipta með sér forsetastólnum á mánaðarfresti. Rússar eru fastir meðlimir í ráðinu ásamt Bandaríkjamönnum, Bretum, Frakklandi og Kína, og því ekki hægt að koma í veg fyrir setu þeirra.

Föstu meðlimirnir fimm gegna veigamiklu hlutverki, enda hafa löndin neitunarvald.

„Þetta er versti brandari í heimi, og það á fyrsta apríl. Seta Rússa í stól forseta er góð áminning um að hið alþjóðlega öryggiskerfi virki ekki sem skyldi,“ sagði Dmytro Kuleba utanríkisráðherra Úkraínu. Mykhailo Podolyak, einn aðalráðgjafi Úkraínuforseta, tók í sama streng og sagði aðstöðuna fáránlega.

Dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins gáfu út handtökuskipun á hendur Vladimír Pútín, forseta Rússlands, fyrr í mánuðinum fyrir stríðsglæpi í Úkraínu. Handtökuskipunin var gefin út vegna fjölda úkraínska barna sem rænt hefur verið til Rússlands. Nú gegnir Rússland embætti forseta í öryggisráðinu, sem ber ábyrgð á því að tryggja frið.

Þrátt fyrir að seta Rússa í stól forseta sé formleg að meginstefnu til segir Vasily Nebenzia, fulltrúi Rússlands hjá Sameinuðu þjóðunum, að hann ætli að taka til hendinni. Hann segist ætla að ræða „nýja heimsskipan“ sem myndi koma í stað þeirra einsleitnu sem nú ríki. 

Volódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur kallað eftir því að öryggisráðið verði myndað upp á nýtt, þar sem ekki hafi verið gert nóg til að koma í veg fyrir innrás Rússa. Breska ríkisútvarpið greinir frá.


Tengdar fréttir

Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Það er verið að slátra þeim“

Yfirmenn úkraínska hersins við Bakhmut segja bardaga þar hafa farið Úkraínumönnum í vil. Formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna lýsti átökunum nýverið sem „slátrun“ á Rússum en úkraínskir hermenn segja varnir bæjarins þó hafa verið verulega kostnaðarsamar.

Gefa út handtökuskipun á hendur Pútín

Dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) hafa gefið út handtökuskipun á hendur Vladimír Pútín, forseta Rússlands, fyrir stríðsglæpi í Úkraínu. Handtökuskipunin er gefin út vegna fjölda úkraínska barna sem rænt hefur verið til Rússlands.

Kallar eftir samstöðu með Pútín

Rússar þurfa að fylkja liði um Vladimír Pútín, forseta Rússlands, því stríðsrekstri ríkisins mun ekki ljúka í bráð. Þetta segir talsmaður Pútíns sem segir einnig að Rússar eigi í stríði við Vesturlönd.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×