Erlent

Risa­vaxin grjót­skriða stað­næmdist stein­snar frá þorpi

Kjartan Kjartansson skrifar
Litlu mátti muna að þorpið Brienz yrði undir grjótskriðunni. Myndin var tekin í morgun en talið er að skriðan hafi fallið á tólfta tímanum í gærkvöldi.
Litlu mátti muna að þorpið Brienz yrði undir grjótskriðunni. Myndin var tekin í morgun en talið er að skriðan hafi fallið á tólfta tímanum í gærkvöldi. AP/Michael Buholzer/Keystone

Þorp í svissnesku Ölpunum slapp naumlega þegar gríðarmikil grjótskriða féll úr fjallshlíð í gærkvöldi. Engar skemmdir urðu á byggingum en þorpið var rýmt fyrir rúmum mánuði vegna hættunar á grjóthruni.

Áætlað var að hætta væri á að um 1,9 milljónir rúmmetra af bergi gæti farið af stað nærri þorpinu Brienz í suðaustanverðu Graubuenden-héraði í Sviss í maí. Ákveðið var að flytja um sjötíu íbúa þess í burtu 12. maí. AP-fréttastofan segir ekki ljóst hversu stór hluti óstöðuga bergsins skreið af stað en sveitarstjórnin á staðnum telur að svo virðist sem að stærsti hluti þess hafi skriðið fram.

Talið er að skriðan hafi farið af stað á milli klukkan ellefu og tólf að staðartíma í gærkvöldi. Skriðan stöðvaðist rétt við skólabyggingu og er sögð margra metra djúp þar.

Viðbúnaður vegna skriðuhættu var aukinn eftir skriðuna. Vegum og járnbrautarspori var lokað og tvö hús í nágrannaþorpinu Surava voru rýmd.

Skriðan stöðvaðist aðeins örfáa metra frá skólabyggingu í Brienz.AP/Michael Buholzer/Keystone

Fátt bendir til þess að þorspbúar í Brienz geti snúið til síns heima á næstunni. Breska ríkisútvarpið BBC segir að enn sé um milljón rúmmetra af óstöðugu bergi eftir í fjallinu sem trónir yfir þorpinu.

Íbúarnir voru ósáttir við hversu brátt rýmingin bar að í vor en fjallið hefur verið talið óstöðugt í áratugi. Þeir bjuggust við því að vera látnir yfirgefa þorpið tímabundið í sumar en í staðinn fengu þeir 48 klukkustunda fyrirvara um að þeir þyrftu að hafa sig á brott á neyðarfundi sem var haldinn 9. maí.

Einhverjir eru sagðir hafa furðað sig á hvers vegna þær mættu ekki snúa heim þar sem grjótið virtist falla rólega og að því er virtist án sérstakrar hættu.

Óvenjumikla rigningu gerði á svæðinu í vor sem átti þátt í að ákveðið var að rýma þorpið. Talið er að gegnsósa fjallshlíðin hafi byrjað að hreyfast hraðar fyrir vikið.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×