Innlent

Katrín Jakobs­dóttir kynnir stöðu Ís­lands gagn­vart heims­mark­miðunum

Máni Snær Þorláksson skrifar
Frá höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í Bandaríkjunum.
Frá höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í Bandaríkjunum. Vísir/Getty

Staða Íslands og vinna í þágu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna verður kynnt á árlegum ráðherrafundi um sjálfbæra þróun í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Fundurinn hefst klukkan 19:00. 

Þar kemur fram að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra muni flytja myndbandsávarp og þá munu Rebekka Karlsdóttir, ungmennafulltrúi á sviði sjálfbærrar þróunar, og Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, einnig flytja ávörp. Eggert Benedikt Guðmundsson, leiðtogi á sviði sjálfbærrar þróunar hjá forsætisráðuneytinu, fer fyrir sendinefnd Íslands og svarar spurningum úr sal í kjölfar kynningarinnar. Hægt verður að fylgjast með í beinni útsendingu hér að neðan.

„Gildistími heimsmarkmiðanna er nú hálfnaður og okkur miðar of hægt áfram. Ríki heims þurfa að auka metnað sinn aðgerðum í þágu heimsmarkmiðanna. Ísland hefur tekið nokkur afgerandi skref frá því síðasta stöðuskýrsla var kynnt árið 2019 og má þar til að mynda nefna stofnun Sjálfbærs Íslands og sjálfbærniráðs. Á þeim vettvangi stendur nú yfir vinna við mótun innlendrar stefnu um sjálfbæra þróun, með heimsmarkmiðin að leiðarljósi, og stefnum við á að ljúka þeirri vinnu fyrir lok þessa árs,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.

Ráðherrafundurinn (e. High Level Political Forum, HLPF) er hinn eiginlegi eftirfylgnivettvangur Sameinuðu þjóðanna með heimsmarkmiðunum um sjálfbæra þróun. Þar gefst ríkjum tækifæri til þess að leggja fram landrýniskýrslur (e. Voluntary National Reviews, VNRs) þar sem þau greina frá stöðu sinni og aðgerðum í þágu heimsmarkmiðanna og kynna niðurstöðurnar á fundinum. Mælst er til þess að ríki geri þetta að minnsta kosti þrisvar sinnum á gildistíma markmiðanna og var þetta í annað sinn sem Ísland skilar inn skýrslu og kynnir sínar niðurstöður.

Í skýrslunni er meðal annars að finna mat stjórnvalda á stöðu Íslands gagnvart heimsmarkmiðunum og til samanburðar er þar einnig að finna stöðumat frjálsra félagasamtaka. Í henni er einnig að finna kafla sem skrifaðir voru af ungmennaráði heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, ungmennafulltrúa Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði sjálfbærrar þróunar, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×