Lífið

Life of Pi á risaskjá í Laugardalslaug

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Gestir RIFF geta byrjað að hlakka til sundbíósins í Laugardalslaug 25. ágúst.
Gestir RIFF geta byrjað að hlakka til sundbíósins í Laugardalslaug 25. ágúst. RIFF

Stærsti sundbíóviðburður RIFF hingað til verður haldinn 25. ágúst næstkomandi. Myndin Life of Pi verður sýnd á 100 fermetra skjá sem er sá stærsti sem settur hefur verið upp utandyra á Íslandi.

RIFF fagnar tuttugu ára afmæli sínu í ár og af því tilefni verður sundbíóið stærra en nokkru sinni fyrr. Stúkan í Laugardalslaug verður opnuð almenningi í fyrsta sinn í áraraðir. 

„Sundlaugarsvæðinu verður breytt í hátíðarsvæði þar sem matur, lifandi tónlist og kvikmyndasýning mynda óviðjafnanlega upplifun. Stúkan, sem rúmar 2600 manns, hefur nýlega verið tekin í gegn og hefur ekki litið svona vel út síðan fyrir aldamót,“ segir í tilkynningu frá RIFF.

Á skjánum verður verðlaunamyndin Life of Pi frá 2012. Myndin var tilnefnd til ellefu Óskarsverðlauna á sínum tíma og vann fjögur. Life of Pi er byggð á metsölubók Yann Martel og er töfrandi ævintýrasaga um ótrúlegt lífshlaup drengs á Indlandi. Myndin gerist að miklu leyti á litlum báti úti á hafi sem gerir hana kjörna fyrir sundbíó RIFF.

Allt sundlaugarsvæðið umhverfis stóru laugina verður opið gestum viðburðarins og iðandi af lífi. Þar munu gestir geta rölt um svæðið, verslað sér sælgæti og RIFF varning, keypt mat frá matarvögnum, legið á legubekkjum og slakað á í heitu pottunum á meðan þeir horfa á bíó.

„Villi Netó verður kynnir og í sundlauginni sjálfri verða árabátar, ekki ósvipaðir þeim sem birtast í myndinni, sem fólki er frjálst að sitja í og horfa á myndina. Lifandi tónlist verður leikin og svæðið lýst upp af Luxor á glæsilegan hátt svo úr verður sannkölluð töfraveröld,“ segir í tilkynningu.

Ævintýrið verður föstudagskvöldið 25. ágúst klukkan 19 en miðasala fer fram á RIFF.is. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×