Alvöru þungarokksveisla í Stykkishólmi næsta sumar Sátan þungarokkshátíð 2. október 2023 12:00 Sátan þungarokkshátíð hefur gert samstarfssamning við X977 og Thule en hátíðin fer fram í Stykkishólmi í júní á næsta ári. F.v. eru Gestur Steinþórsson, forstöðumaður áfengra drykkja hjá CCEP, Ómar Úlfur dagskrárstjóri X977, Starkaður Pétursson frá Thule og Gísli Sigmundsson, framkvæmdastjóri Sátunnar. Boðið verður upp á þriggja daga rokkveislu í Stykkishólmi í júní á næsta ári þegar þungarokkshátíðin Sátan fer fram. Margar af fremstu þungarokkshljómsveitum landsins koma fram ásamt vel völdum erlendum hljómsveitum. „
Sátan er alvöru þungarokkshátíð og við munum halda okkur við þungarokk og það helsta í nágrenninu við það,“ segir Gísli Sigmundsson, framkvæmdastjóri Sátunnar. „En þungarokk getur verið mjög fjölbreytt og við leggjum upp úr því að vera með breitt úrval innan þess ramma sem við höfum sett okkur. Áherslan verður alltaf á íslenskar hljómsveitir enda er gríðarleg gróska og hár standard í íslensku þungarokki." Meðal sveita sem hafa staðfest komu sína eru HAM, I Adapt, Misþyrming, Auðn og Une Misere. „En við ætlum líka að vera með nokkrar erlendar hljómsveitir og erum enn að vinna í því að landa þeim.“ Gömlu kempurnar í HAM ætla að mæta á Sátuna. Gísli og Nansý kona hans hafa mikinn áhuga á þungarokkshátíðum, bæði sem skipuleggjendur og gestir. „Við höfum bæði komið að skipulagningu Eistnaflugs og Reykjavík Metalfest hér heima og erum reglulegir gestir á erlendum hátíðum eins og Hellfest, Copenhell og Brutal Assault.“ Búið er að kynna til leiks margar frábærar sveitir og fleiri munu bætast í hópinn. Hugmyndin að Sátunni fæddist í heimsókn hjá Lilju, yngri dóttur hjónanna, sem býr einmitt í Stykkishólmi. „Við vorum að ræða þungarokkshátíðir þegar Lilja spyr: Getum við ekki bara haldið þungarokkshátíð í Stykkishólmi? Auðvitað fór allt af stað við þessa spurningu og við sóttum blað og penna og hripuðum niður næstu skref. Næsta mánudag var Lilja gengin á málið og við hringdum í framhaldinu í nokkra vini sem voru alveg til í þetta og þannig rúllaði boltinn af stað.“ Misþyrming er eitt fjölda banda sem stígur á stokk á Sátunni. Á bak við Sátuna stendur hópur reynslubolta sem hefur komið að skipulagi nokkurra tónlistarhátíða hérlendis og spila í þungarokkssveitum. „Það eru miklir meistarar með okkur í liði enda dugar ekkert annað en að vinna með ákveðnum og mjög traustum einstaklingum í svona stóru verkefni.“ I Adapt mun koma fram í fyrsta skiptið í tólf ár á Sátunni. Fyrir utan hjónin og dóttur þeirra Lilju inniheldur hópurinn Guðjón úr Sororicide, Unnar úr Beneath og Reykjavík Metalfest, Steingrím frá Eistnaflugi og Reykjavík Metalfest, Silla úr Dimmu og Valla Dordingul ásamt fleirum sem hafa komið að þessu á einn eða annan hátt. „Í raun er þetta fjölbreyttur hópur af þungarokkurum sem hafa verið í hljómsveita- og/eða tónleikabrölti hér heima og erlendis í meira en 30 ár í sumum tilfellum.“ Sólstafir ætla að flytja sín þekktustu lög. Nýlega var tilkynnt um nýja samstarfsaðila Sátunnar en það eru útvarpsstöðin X977 og Thule. „Fyrir okkur er gríðarlega mikilvægt að fá þennan stuðning frá sterkum vörumerkjum með svona frábært fólk á bak við sig sem hefur trú á því sem við erum að gera. Þetta mun gera hátíðina sýnilegri og hjálpa okkur að tryggja hana í sessi um ókomin ár. Við stefnum á að gera helling af skemmtilegum hlutum með þessum frábæru samstarfsaðilum okkar.“ Une Misere eru mjög þéttir á sviði. Miðasala á Sátuna hefst í dag, mánudaginn 2. október í gegnum Glaze sem er annar samstarfsaðili hátíðarinnar. „Það verður bæði hægt að finna miðasöluna í gegnum heimasíðuna okkar og einnig með því að lesa QR kóða á hátíðarplaggatinu okkar. Svo má benda gestum á að fjölmargir skemmtilegir gistimöguleikar eru í boði í Stykkishólmi og nágrenni auk þess sem það er stórglæsilegt tjaldsvæði í bænum.“ Nánari upplýsingar á www.satan-festival.com.
X977 Tónlist Stykkishólmur Mest lesið Fjögurra ára rússíbanareið að baki Menning „Drull sama hvað einhver apaköttur segir“ Tónlist „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Lífið Spáir Ísrael sigri í Eurovision Lífið Fréttatía vikunnar: Eldgos, knattspyrna og rapparar Lífið Laufey tók lagið hjá Jimmy Fallon Tónlist „Bangsar eru í raun partur af fjölskyldunni“ Lífið „Mér finnst mikilvægt að ég segi frá minni hlið“ Lífið „Ef ég gæti hnoðað einn úr tíu bestu væri það himnaríki á jörð“ Lífið Byrjaði að hlaupa til að sýna fyrrverandi í tvo heimana Lífið Fleiri fréttir Einstakar húðmeðferðir sem auka heilbrigði húðarinnar „Okkar sérsvið liggur í sætindum“ – mæðradagsbombur frá 17 sortum Glæsileg dagskrá á Þjónustudegi Toyota á laugardag Umfram allt að húsgögnin þoli íslenskt veðurfar Nýi Draumurinn slær í gegn Dáleiðsludagurinn 11. maí Er hægt að nota of mikið af sólarvörn? Taktu þátt í Ford Fantasy leik Bestu deildar karla Ný vörulína lagar litabletti í húð The House of Beauty fagna sex ára afmæli með látum Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sætu sænsku vörurnar sem farnar eru á flug um allan heim „Probi Female er það eina sem hefur virkað fyrir mig“ SENSAI í Hagkaup í 30 ár Minnkar kláða og ertingu í húð barnsins „Hárið á mér síkkar bókstaflega á hraða ljóssins“ Taktu þátt í BabyShowerleik Vísis Sjá meira