Lífið

Um 50 list- og menningarviðburðir í boði á Akranesi á Vökudögum

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Bleik messa verður í Akraneskirkju á Vökudögum þar sem þessar konur munu örugglega mæta.
Bleik messa verður í Akraneskirkju á Vökudögum þar sem þessar konur munu örugglega mæta. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Íbúar á Akranesi eru nú að setja sig í stellingar fyrir ellefu daga lista- og menningarhátíð, Vökudaga, sem hefjast fimmtudaginn 26. október. Boðið verður upp á um fimmtíu menningarviðburði í bæjarfélaginu þessa daga allt frá listsýningum upp í pönktónleika.

Lífið á Akranesi snýst ekki bara um knattspyrnu og aðrar íþróttir því þar er mjög öflugt menningarlíf enda á að halda núna í 21. sinn menningarhátíðina Vökudaga.

En af hverju heitir hátíðin þessu nafni?

Vera Líndal Guðnadóttir er verkefnisstjóri menningarmála á Akranesi.

„Ætli þetta sé ekki aðallega vegna þess að þetta er til að lífga upp á skammdegið, halda okkur glöðum og vakandi yfir listgreinum bæjarins,“ segir Vera og heldur áfram.

„Hátíðin stendur saman af ótrúlega öflugu listafólki frá Akranesi, sem tekur sig saman og býður fólki á sýningaropnanir, opnar vinnustofur, tónleika og ýmislegt fleira.“

Vera segir að um 50 ólíka lista- og menningarviðburði verði að ræða, meðal annars tvær tónlistarhátíðir.

„Það eru annars vegar Heimaskagahátíðin, sem er algjör hittari á Akranesi. Hún er þannig að það eru 11 heimili, sem bjóða bæjarbúum inn í stofu á tónleika þar sem þekktir tónlistarmenn spila. Svo er það hins vegar „Lilló hardcorefest“, sem er harðkjarna og pönkhátíð í gamla Landsbankahúsinu, þannig að það er svona ákveðin breidd í þessu öllu saman, það er ótrúlega skemmtilegt.“

Vera Líndal Guðnadóttir, verkefnisstjóri menningarmála á Akranesi.Aðsend

En hvað skýrir þennan mikla sköpunarkraft í kringum list- og menningu á Akranesi?

„Það er vegna þess að hér er fjölbreyttur hópur listafólks og áhugafólks um menningu í bænum sem drífur áfram listasenuna og eykur veg menningar í samfélaginu. Þau eru styðjandi hvort við annað og hér starfa öflug listafélög. Á Vökudögum fáum við að upplifa afraksturinn af þessar vinnu og líta inn í hugarheim þeirra. Það er einstakt tækifæri fyrir bæjarbúa,” segir Vera og bætir strax við.

„Á Vökudögum getur maður skoðað verk leik- og grunnskólabarna, litið við á handverksmarkaði hjá okkar glæsilegu eldri borgurum í félagsstarfi Akraneskaupstaðar, ungmenni geta skellt sér á smiðjur og lært að jöggla, jóðla, rokka eða mála svo eitthvað megi nefna. Bæjarstjórinn okkar ætlar meira að segja að bjóða á viðburð í lok hátíðarinnar. En þar fer hann yfir sögu Jóns Hreggviðssonar yfir brauðtertum og bjór. Það fléttast síðan tvær aðrar hátíðir í samfélaginu fallega inn í Vökudaga. Það eru hrekkjavakan og bleikur október. Í tilefni af þeim verða styrktartónleikar, bleik messa í Akraneskirkju og svo hið alræmda hrollvekjuhús á Byggðarsafninu.”

Tvær tónlistarhátíðir verða haldnar, Heimaskagahátíðin og pönkhátíð í gamla LandsbankahúsinuAðsend

Formlega setning Vökudaga fer fram fimmtudaginn 26. október í tónlistarskólanum þar sem menningarverðlaun Akranes 2023 verða veitt, auk umhverfisverðlauna bæjarfélagsins. Í kjölfar setningarathafnarinnar fer fram listaganga þar sem bæjarbúar ganga um bæinn og kíkja við á sýningaropnunum og opnar vinnustofur. 

Hægt er að skoða dagskrá Vökudaga hér og á Facebook og Instagram undir nafni hátíðarinnar.

Dagskrá Vökudaga er mjög fjölbreytt og ættu því allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.Aðsend





Fleiri fréttir

Sjá meira


×