Innlent

Ís­land styður til­löguna um tafar­laust vopna­hlé

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bjarni Benediktsson við Ráðherrabústaðinn í Tjarnargötu þar sem fólk hefur krafist þess reglulega undanfarnar vikur að Ísland tæki eindregna afstöðu gegn voðaverkunum fyrir botni Miðjaðarhafs.
Bjarni Benediktsson við Ráðherrabústaðinn í Tjarnargötu þar sem fólk hefur krafist þess reglulega undanfarnar vikur að Ísland tæki eindregna afstöðu gegn voðaverkunum fyrir botni Miðjaðarhafs. Vísir/Vilhelm

Ísland er á meðal fjölmargra þjóða sem ætla að styðja tillögu tveggja Afríkuríkja á neyðarfundi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna um tafarlaust vopnahlé á Gaza. Þetta staðfestir Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra.

Aðeins eru nokkrir dagar síðan Bandaríkjamenn beittu neitunarvaldi sínu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og komu þannig í veg fyrir að svipuð ályktun næði fram að ganga þar.

Engin þjóð hefur hinsvegar neitunarvald á Allsherjarþinginu en ólíkt öryggisráðinu eru ályktanir þess ekki bindandi. Þær hafa þó því hlutverki að gegna að þar kemur vilji allra þjóða heimsins skýrt fram í málum. öryggisráðinu hefur sex sinnum mistekist að koma í gegn ályktun um vopnahlé frá því átökin hófust.

Allsherjarþingið samþykkti þó í lok október ályktun Jórdaníu um tafarlaust vopnahlé á svæðinu. 120 ríki greiddu atkvæði með þeirri ályktun og aðeins fjórtán voru á móti. Ísland var hinsvegar þá í hópi 45 ríkja sem sátu hjá.

Bjarni tjáði fréttastofu að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun að nokkuð góð samstaða hafa myndast milli Norðurlandaríkjanna og fleiri ríkja um að styðuja tillöguna og mögulega verða meðflytjendur.

Fréttin er í vinnslu.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×