Íslenski boltinn

Þór/KA fær góða jóla­gjöf frá Söndru Maríu Jes­sen

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sandra María Jessen hefur verið fastamaður í landsliðinu í haust.
Sandra María Jessen hefur verið fastamaður í landsliðinu í haust. Vísir/Hulda Margrét

Sandra María Jessen hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Þór/KA í Bestu deild kvenna í fótbolta.

Þór/KA færir stuðningsmönnum sína jólagjöf með því að staðfesta nýjan samning hjá besta leikmanni liðsins á miðlum sínum.

Sandra María var með lausan samning en Akureyrarliðinu tókst að halda í sína konu sem eru gleðifréttir fyrir liðið sem hefur misst marga leikmenn suður á síðustu árum.

Sandra hefur verið fastakona í íslenska landsliðinu á þessu ári og fullkomnaði með því endurkoma sína eftir barnsburð.

Hún hefur verið lykilmaður Þór/KA undanfarin tvö sumar eftir að hafa komið heim úr atvinnumennsku.

Hún var fyrirliði liðsins í sumar og var þá með átta mörk og fjórar stoðsendingar í nítján leikjum í Bestu deildinni.

Sandra gekk aftur í raðir Þórs/KA fyrir tímabilið 2022 eftir að hafa verið hjá þýska úrvalsdeildarfélaginu Bayer 04 Leverkusen frá ársbyrjun 2019. Áður hafði hún tvisvar spilað í nokkra mánuði á lánssamningi erlendis, hjá Slavia Prag 2016 og Leverkusen 2018.

Sandra er markahæsti leikmaður Þór/KA í efstu deild frá upphafi með 89 mörk, fimmtán fleiri en næsta kona, og þá er hún aðeins þremur leikjum frá því að komast upp í annað sætið yfir flesta leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×