Sport

Veg­leg há­tíðar­dag­skrá á Stöð 2 Sport

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Fjórir nýir heimildaþættir um ríkjandi Íslandsmeistara í fótbolta og körfubolta, karla og kvenna, verða frumsýndir á milli jóla og nýárs.
Fjórir nýir heimildaþættir um ríkjandi Íslandsmeistara í fótbolta og körfubolta, karla og kvenna, verða frumsýndir á milli jóla og nýárs.

Það verður nægt framboð af úrvalsíþróttaefni á Stöð 2 Sport um hátíðarnar, bæði af innlendum og erlendum vettvangi.

Mikilvægir leikir fara fram í NFL, bæði á aðfangadag og gamlársdag, og NBA-deildin býður að venju upp á frábæran leik á jóladag. Í ár verður leikur stórveldanna LA Lakers og Boston Celtics sýndur á besta tíma um kvöldið.

En það verður einnig frábært úrval af íslensku íþróttaefni. Nýir þættir, Íslandsmeistarar, verða sýndir á milli jóla og nýárs en í hverjum þætti verða teknir fyrir Íslandsmeistaraliðin í fótbolta og körfubolta, karla og kvenna.

Þá verður Sportsíldin á sínum stað á gamlársdag og spurningaþátturinn Heiðursstúkan snýr aftur á skjáinn.

Hér má sjá yfirlit yfir helstu útsendingar um hátíðarnar.

Þorláksmessa

17.30 New York Knicks – Milwaukee Bucks (NBA)

19.30 Roma – Napoli (Serie A)

Alls fara fjórir leikir fram í Serie A þennan daginn sem lýkur með stórleik Roma og Ítalíumeistara Napoli.

20.00 Heiðursstúkan

Jóhann Fjalar fær til sín Tómas Steindórsson og Hörð Unnsteinsson í spurningakeppni um körfubolta.

Aðfangadagur

18.00 NFL Red Zone

18.00 Minnesota Vikings – Detroit Lions (NFL)

21.20 Miami Dolphins – Dallas Cowboys (NFL)

Sannkallaður jólapakki frá NFL-deildinni. Sjö tíma órofin útsending frá NFL Red Zone þar sem skipt er á milli allra leikja sem fara fram. Samtímis verða tveir leikir sýndir en sá síðari, á milli Dolphins og Cowboys, er risaleikur.

LeBron James og félagar í LA Lakers mæta til leiks á jóladag í NBA deildinni.Getty/Ethan Miller

Jóladagur

22.00 LA Lakers – Boston Celtics (NBA)

Jóladagur hefur lengi verið stærsti dagur dagatalsins hjá NBA-deildinni og er engin undantekning á því í ár. Við sýnum leik stórveldanna Lakers og Celtics.

Annar í jólum

20.00 Heiðursstúkan

Jóhann Fjalar fær til sín Andra Ólafsson og Magnús „Peru“ Guðmundsson í spurningakeppni um NFL-deildina.

27. desember

20.00 Íslandsmeistarar - Valur (Besta deild kvenna)

Heimildaþáttur um Íslandsmeistaratímabil Vals í Bestu deild kvenna, þar sem rætt er við leikmenn og þjálfara um leiðina að titlinum.

20.00 Lokasóknin (NFL)

Andri Ólafsson og sérfræðingar Stöðvar 2 Sports fara yfir alla leiki helgarinnar í sérstökum jólaþætti af Lokasókninni.

Valur varð Íslandsmeistari í Bestu deild kvenna.Vísir/Diego

28. desember

20.00 Íslandsmeistarar - Valur (Subway deild kvenna)

Heimildaþáttur um Íslandsmeistaratímabil Vals í Subway deild kvenna, þar sem rætt er við leikmenn og þjálfara um leiðina að titlinum.

29. desember

19.35 Genoa – Inter (Serie A)

Albert Guðmundsson hefur verið sjóðheitur með Genoa að undanförnu og fær hér stórlið Inter í heimsókn.

20.00 Íslandsmeistarar - Víkingur (Besta deild karla)

Heimildaþáttur um Íslandsmeistaratímabil Víkings í Bestu deild karla, þar sem rætt er við leikmenn og þjálfara um leiðina að titlinum.

20.30 Heiðursstúkan

Jóhann Fjalar fær til sín Rúnar Kárason og Stefán Rafn Sigurmannsson í spurningakeppni um handbolta.

Tindastóll varð Íslandsmeistari í körfubolta eftir sigur á Val í ótrúlegu úrslitaeinvígi.

30. desember

20.00 Íslandsmeistarar - Tindastóll (Subway deild karla)

Heimildaþáttur um Íslandsmeistaratímabil Tindastóls í Subway deild karla, þar sem rætt er við leikmenn og þjálfara um leiðina að titlinum.

22.00 Utah Jazz – Miami Heat (NBA)

Gamlársdagur

16.00 Sportsíldin 2023

Guðmundur Benediktsson og Kjartan Atli Kjartansson gera upp íþróttaárið í máli og myndum. Gestir þáttarins eru Dagur Sigurðsson, Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, Kristjana Arnarsdóttir og Teitur Örlygsson.

18.00 NFL Red Zone

18.00 Baltimore Ravens – Miami Dolphins (NFL)

20.00 Washington Wizards – Atlanta Hawks (NBA)

21.20 Kansas City Chiefs – Cincinnati Bengals (NFL)

Áramótahelgin verður helguð stórleikjum bæði í NFL- og NBA-deildunum.

Patrick Mahomes í eldlínunni með Kansas City Chiefs í NFL-deildinni.Vísir/Getty

Nýársdagur

18.45 Heiðursstúkan

Jóhann Fjalar fær til sín Hólmar Örn Eyjólfsson og Leif Andra Leifsson í spurningakeppni um fótbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×