Erlent

Nærri því átta­tíu úr sömu fjöl­skyldunni féllu í á­rás

Samúel Karl Ólason skrifar
Rúmlega níutíu manns féllu í tveimur loftárásum Ísraela á Gasaströndinni í gær. Í einni þeirra féllu 76 manns úr sömu fjölskyldunni.
Rúmlega níutíu manns féllu í tveimur loftárásum Ísraela á Gasaströndinni í gær. Í einni þeirra féllu 76 manns úr sömu fjölskyldunni. AP/Adel Hana

Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir árásir Ísraela á Gasaströndinni gera starfsmönnum SÞ erfitt að koma neyðarbirgðum til þeirra sem þurfa á þeim að halda. Miklir tálmar hafi verið settir í veg hjálparstarfsmanna og þörf sé á meiri aðstoð.

Sameinuðu þjóðirnar segja að einungis tíu prósent af þeim neyðarbirgðum sem nauðsynlegar eru hafi borist. Samkvæmt Reuters segja Ísraelar að 5.405 flutningabílum með matvæli, vatn, lyf og aðrar nauðsynjar hafi verið hleypt inn á Gasaströndina frá því innrás ísraelska hersins hófst.

Harðir bardagar geisa á norðurhluta Gasastrandarinnar og þá sérstaklega í Jabalya, þar sem Hamas-liðar segjast hafa grandað fimm ísraelskum skriðdrekum og fellt eða sært áhafnir þeirra. Ísraelar segjast aftur á móti nærri því að ná fullum yfirráðum á svæðinu og að undirbúningur fyrir hernaðaraðgerðir á suðurhlutanum sé í undirbúningi.

Hundruð þúsunda af um 2,3 milljónum íbúa Gasastrandarinnar hafa flúið til suðurs en sitja þar föst.

Palestínskur maður syrgir fjölskyldumeðlim sinn eftir loftárás í Khan Younis.AP/Mohammed Dahman

AP fréttaveitan hefur eftir hjálparsveitum og starfsmönnum sjúkrahúsa á Gasa að rúmlega níutíu manns hafi fallið í árásum Ísraela á tvö íbúðarhús í Gasaborg í norðurhlutanum í gær. Þar af eru 76 manns úr sömu fjölskyldunni en árásirnar eru einhverjar þær mannskæðustu frá því innrás Ísraela hófst.

Meðal þeirra sem féllu í árásunum var Issam al-Mughrabi, sem hefur lengi starfað fyrri Sameinuðu þjóðirnar á Gasaströndinni, eiginkona hans og fimm börn þeirra.

Í heildina hafa rúmlega tuttugu þúsund manns fallið í árásum Ísraela, samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum á Gasa, sem Hamas stýrir. 53 þúsund eru sögð hafa særst í árásunum.

Nærri því 85 prósent íbúa hafa þurft að flýja heimili sín og rúm hálf milljón manna svelta, samkvæmt Sameinuðu þjóðunum og öðrum samtökum.


Tengdar fréttir

„Troðið í ykkur klökum og haldið helvítis kjafti“

Izhar Cohen, sem vann Eurovision fyrir hönd Ísrael árið 1978, segir Ísraela vita að Íslendingum sé illa við þá. Íslendingar hafi sýnt það þegar söngvakeppnin fór fram í Tel Aviv og íslenski hópurinn hafi umgengst öfgafulla Palestínumenn og stutt hryðjuverkastarfsemi gegn Ísraelum.

Hafa komist að samkomulagi um gjörbreytta tillögu

Bandaríkin og Arabaríkin hafa komist að samkomulagi um orðalag ályktunar sem tekin verður til atkvæðagreiðslu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í dag, eftir vikulangar samningaviðræður.

Tuttugu þúsund sögð látin á Gasa

Tuttugu þúsund manns eru látin á Gasa vegna árása Ísraela að sögn heilbrigðisyfirvalda þar. Ísraelsmenn hafa sagt að þeir muni ekki láta af árásum sínum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×