Lífið

Bíða spennt eftir þriðju stúlkunni

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Eva og Haddi létu pússa sig saman í júlí 2016.
Eva og Haddi létu pússa sig saman í júlí 2016. Skjáskot/Eva Laufey

Eva Laufey Kjaran, markaðs-og upp­lif­un­ar­stjóri Hag­kaups, og eiginmaður hennar eiga von á þriðju stúlkunni í maí næstkomandi.

„Eitt er víst að það verður fjör á heimilinu þegar þriðja stelpan okkar mætir í heiminn og hér á bæ er talið niður, við erum svo spennt,“ skrifar Eva í færslu á samfélagsmiðlum, full tilhlökkunar fyrir nýju ári.

Saman eiga þau Ingibjörgu Rósu, níu ára og Kristínu Rannveigu, sex ára.

Eva Laufey og Haddi, eins og hann er kallaður, byrjuðu saman fyrir tæpum átján árum síðan og létu gefa sig saman við hátíðlega athöfn í Akraneskirkju í júlí 2016.

Eva hefur verið einn visælasti sjónvarpskokkur landsins síðastliðin ár auk þess að hafa gefið út vinsælar matreiðslu- og kökubækur.


Tengdar fréttir

Klassísk skúffukaka að hætti Evu Laufeyjar

Matgæðingurinn og dagskrárgerðarkonan Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir kann sitthvað fyrir sér í bakstrinum og deilir uppskrift að klassískri súkkulaðiköku með fylgjendum sínum á Instagram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×