Lífið

Bryn­hildur Gunn­laugs hélt með­göngunni leyndri

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Brynhildur Gunnlaug er ein vinsælasta samfélagsmiðlastjarna landsins.
Brynhildur Gunnlaug er ein vinsælasta samfélagsmiðlastjarna landsins. Brynhildur Gunnlaugs

Samfélagsmiðlastjarnan Brynhildur Gunnlaugsdóttir og körfuboltamaðurinn Dani Koljanin eignuðust stúlku 4. desember síðastliðinn. Brynhildur hélt þunguninni leyndri frá fylgjendum sínum og segist ekki ætla að birta myndum af dótturinni á miðlunum.

Brynhildur greinir frá gleðitíðindunum í nýja hlaðvarpsþættinum Gellukast. Þátturinn er í umsjón Söru Jasmínar og Brynhildar.

Í þættinum greinir hún frá því hvers vegna hún hafi ákveðið að halda meðgöngunni leyndri frá fylgjendum sínum.

„Ég var sem sagt ólétt og átti núna 4. desember. Litla stelpu, hún er ótrúlega sæt,“ segir Brynhildur:

„Ég ákvað ekki að vera með það opinbert. Ég er með allt annað á netinu, eða þú veist. Aðallega mig. Eins og með Instagram, ég mun aldrei pósta myndum af barninu mínu þar. Mér finnst það ógeðslega krípí.“

Brynhildur er með tæplega 120 þúsund fylgjendur á Instagram og yfir 1,6 milljónir fylgjenda á TikTok.

„Já, líka þegar þú ert komin með ógeðslega marga fylgjendur,“ segir Sara Jasmín.

Brynhildur tekur undir orð vinkonu sinnar um hæl:

„Það eru bara einhverjir perrar, einhverjir útlenskir perrar. Maður veit aldrei.“ 

TikTok ýtti undir kvíða

Brynhildur segir frá því hvernig TikTok ýtti undir kvíða hjá henni á meðgöngunni. 

„Ekki skoða TikTok ef þú ætlar að eignast barn eða ef þú ert ólétt. Þú missir tennurnar, löppina, ég á þannig séð að vera sköllótt. Allt slæmt gerist. Það eru hræðslusögur eftir hræðslusögur,“ segir Brynhildur og heldur áfram:

„Þetta er ekkert mál. Ég átti mjög góða meðgöngu og fæðingin var í lagi. Mér finnst eins og svo margir séu hræddir við þetta ferli, sem ég skil alveg, af því ef þú skoðar TikTok þá eru konur með lista yfir það afhverju þú ættir ekki að verða ólétt.“

Brynhildur ferðaðist víða um heiminn á meðgöngunni til að halda óléttunni leyndri. Þar má nefna Belgíu, Króatíu, Tenerife og París.

Fyrsti þáttur Gellukastsins fór í loftið í dag og má heyra í heild sinni í spilaranum hér að neðan. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×