Innlent

Ráð­gátan um hundadauðann verður ekki leyst

Árni Sæberg skrifar
Katla, Anett, Alpha, Nome, Lupo, Lunatic, Nagli, Lúsía, Navi og Lágfóta voru öll dáin í gerðinu þegar Askur sneri til baka.
Katla, Anett, Alpha, Nome, Lupo, Lunatic, Nagli, Lúsía, Navi og Lágfóta voru öll dáin í gerðinu þegar Askur sneri til baka.

Rannsókn á dularfullum dauða tíu hunda á Austurlandi var hætt eftir að engar vísbendingar komu fram um hvað varð hundunum að aldurtila.

Laugardaginn 8. júlí síðastliðinn kom Askur Bárðdal Laufeyjarson að tíu hundum sínum dauðum í hundagerði á sveitabænum Engihlíð í Norðurdal í Breiðdal, upp af Breiðdalsvík á Austfjörðum.

Askur sagði í samtali við Vísi á sínum tíma að hann hafi ekki fundið neinar vísbendingar um hvað hefði getað valdið dauða allra tíu hundanna samtímis.

„Það voru engir sjáanlegir áverkar. Ég þreifaði sjálfur á hundunum og fór svo út um allt gerðið í leit að einhverju sem gæti mögulega hafa orðið þeim að bana en fann ekkert,“ sagði Askur.

Fyrst til MAST og svo til lögreglu

Hundadauðinn fór upphaflega á borð Matvælastofnunar. Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir MAST, sagði í samtali við Vísi í lok júlí síðastliðins að málið væri einstakt og stofnunin botnaði ekkert í því. 

Tveir hundanna hafi verið sendir í krufningu á tilraunastöð Háskóla Íslands á Keldum.

„Það er enn þá verið að bíða eftir frekari niðurstöðum úr krufningu. Þetta fór í eiturefnagreiningu og það tekur einhverjar vikur. Þannig þetta fór ekki lengra af okkar hálfu og við vísuðum þessu til lögreglu,“ sagði Sigurborg.

Rannsókn lögreglu rann út í sandinn

Í svari Lögreglunnar á Austurlandi við fyrirspurn Vísis segir að málið hafi verið sent lögreglu eftir að eiturefnagreining skilaði engum vísbendingum um hvað varð hundunum að aldurtila.

Í kjölfarið hafi umhverfi hundanna meðal annars verið skoðað, veðurfar á þeim tíma sem atburðurinn varð og fleira sem gæti skýrt dauða tíu hunda á sama tíma. 

Þá hafi og verið rætt við fólk sem mögulega gæti haft vitneskju um málsatvik. Ekkert hafi þar komið fram sem varpað gæti ljósi á hvað gerðist eða af hvaða völdum. Rannsókn málsins hafi því verið hætt. Komi ný gögn fram í málinu sé þó unnt að taka rannsókn þess upp að nýju.


Tengdar fréttir

Hunda­dauðinn kominn á borð lög­reglu

Mál tíu hunda sem fundust dauðir fyrr í mánuðinum án skýringar er komið á borð lögreglu. Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun, segir að verið sé að rannsaka hvort eitrað hafi verið fyrir þeim.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×