Rafíþróttir

Ljósleiðaradeildin í beinni: Að­eins tvær um­ferðir eftir af tíma­bilinu

Snorri Már Vagnsson skrifar
Viruz, Tight, Mozar7 og ShiNe eiga allir skráðan leik í kvöld.
Viruz, Tight, Mozar7 og ShiNe eiga allir skráðan leik í kvöld.

Ljósleiðaradeildin í Counter-Strike heldur áfram í kvöld, en umferðin er sú næstsíðasta á tímabilinu.

Tvær viðureignir eru á dagskrá í kvöld, en SAGA og Breiðablik opna kvöldið með leik sínum kl. 19:30. Breiðablik getur jafnað Sögu á stigum, sigri þeir í kvöld, og geta því farið jafnir þeim inn í úrslitakvöldið á laugardaginn næstkomandi

Í seinni viðureign kvöldsins mætast FH og ÍBV. FH geta jafnað Young Prodigies á stigum með sigri, en ÍBV geta ekki unnið sig upp úr níunda sæti.

Fylgjast má með Ljósleiðaradeildinni í beinni útsendingu á Stöð 2 Esports, Twitch-rás Rafíþróttasamtakanna eða í spilaranum hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×