Innlent

Fólk hefur gengið örna sinna í garði Bjarna

Jakob Bjarnar skrifar
Bæði Brynjar og Jón eru Bjarna þakklátir fyrir að standa í því að leiða Sjálfstæðisflokkinn, sem er ekkert grín ef marka má orð þeirra.
Bæði Brynjar og Jón eru Bjarna þakklátir fyrir að standa í því að leiða Sjálfstæðisflokkinn, sem er ekkert grín ef marka má orð þeirra. vísir/vilhelm

Jón Gunnarsson fyrrverandi dómsmálaráðherra og Brynjar Níelsson aðstoðarmaður hans voru gestir í hlaðvarpinu Chess after dark og þar upplýsti Jón um að Bjarni Benediktsson mætti sæta ótrúlegasta aðkasti í starfi.

Þeir félagar voru að einhverju leyti að gera upp valdatíð sína en einnig var hugað að stöðu Sjálfstæðisflokksins í tali þeirra og þá stöðu Bjarna Benediktssonar formanns flokksins í því samhengi.

Veist að konu Bjarna, börnum og bílar hans rispaðir

Brynjar sagði það áhyggjuefni að öflugt fólk þori ekki inn í þessa ljónagryfju sem stjórnmál á Íslandi eru. Og það sé skiljanlegt.

„Þegar ég ákvað að fara út í pólitík 2013 spurði kona mína: Ætlarðu lækka tekjurnar fjórfalt og verða fyrir aðkasti. Ertu geðveikur?“

Þá tók Jón til máls og sagði, af því að spurt væri sérstaklega um Bjarna, þá hefði hann ætíð dáðst að því hversu lengi hann hefur enst í þessu starfi.

„Miðað við aðkastið sem hann hefur orðið fyrir. Og það vill svo til að við vorum að ræða þetta í dag. Fólk er að veitast að konunni hans úti í búð, börnunum hans. Fólk er að koma og ganga örna sinna á lóðinni heima hjá honum, rispa bílana hans,“ sagði Jón.

Unglingsstúlkur pissa á hús og láta svívirðingar fylgja

Brynjar skaut því inn í að formenn Sjálfstæðisflokksins hafi ætíð orðið fyrir aðkasti. Jón tók undir það.

„Að menn skuli endast svona lengi í þessu, það er ekki annað hægt en dáðst að því.“

Því má svo við þetta bæta að í pistli Óla Björns Kárasonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins í Morgunblaðinu í dag eru svipaðar lýsingar. Þar segir hann að unglingsstúlkum finnist það eðlilegt og nauðsynlegt að útbúa myndband og birta á samfélagsmiðlum þar sem þær pissi utan í vegg stjórnmálamanns sem er þeim ekki þóknanlegur. „Og þær láti persónulegar svívirðingar fylgja.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×