Rafíþróttir

Ljósleiðaradeildin í beinni: Tveir leikir á dag­skrá og línur að leggjast fyrir loka­kvöldið

Snorri Már Vagnsson skrifar
Ruflu, Allee, PolishWonder og Asiii eiga skráða leiki í kvöld.
Ruflu, Allee, PolishWonder og Asiii eiga skráða leiki í kvöld.

Næstsíðasta umferð tímabilsins í Ljósleiðaradeildinni í Counter-Strike klárast í kvöld. Ljóst er að mikið er í húfi fyrir liðin en ekkert lið í efstu sjö sætunum hefur tryggt sæti sitt.

Klukkan 19:30  mætast lið Young Prodigies og Ármanns í fyrri leik kvöldsins.. Young Prodigies getur slitið sig frá FH með sigri í kvöld, en bæði lið eru með 16 stig í 6-7 sæti. Ármann eru þó í þriðja sæti deildarinnar og geta gulltryggt það með sigri í kvöld. Saga og Breiðablik eru með 20 stig fyrir neðan þá en með sigri tryggir Ármann sætið.

Í seinni leik kvöldsins kl. 20:30 mætast svo Þór og ÍA. Þór eru jafnir NOCCO Dusty á toppi deildarinnar en þeir mæta liði Dusty einmitt á laugardaginn næstkomandi. Með sigri geta þeir þá farið í einvígið með tveggja stiga forskot. ÍA eru í áttunda sæti deildarinnar og geta aðeins jafnað FH og Young Prodigies á stigum ef þeir sigra báða leikina sem þeir eiga eftir.

Leikina má nálgast í beinni útsendingu Rafíþróttasamtakanna á Twitch-rás þeirra, Stöð 2 Esports eða í spilaranum hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×