Innlent

Máttu fjarlægja illa lyktandi hunda með saurugan feld af heimilinu

Jón Þór Stefánsson skrifar
Hundarnir voru af tegundinni pomeranian. Myndin er úr safni.
Hundarnir voru af tegundinni pomeranian. Myndin er úr safni. Getty

Matvælastofnun var heimilt að fjarlægja tvo hunda af heimili eiganda síns í júlí á síðasta ári og ráðstafa þeim annað. Þetta er niðurstaða úrskurðar Matvælaráðuneytisins, en eigandinn lagði fram stjórnsýslukæru vegna sviptingarinnar.

Matvælaráðuneytið segir ljóst að ákvörðun MAST hafi byggt á upplýsingum um óviðunandi meðferð á hundunum og aðbúnaði þeirra. Hún hafi líka byggt á skoðun dýralæknis og verið tekin í samráði við lögregluna á Suðurnesjum, en það var hún sem tilkynnti MAST um aðbúnað hundanna.

Lögregla fékk tilkynningu um að útidyrahurð á heimilinu væri galopin og hefði verið það frá því kvöldið áður. Hundarnir tveir voru af tegundinni Pomerianian og fundust á umræddu heimili, húsi sem var mannlaust, þegar lögreglu bar að garði. Hundarnir voru einir og eftirlitslausir og að sögn lögreglu í slæmu ásigkomulagi.

Í úrskurðinum segir að felldur hundanna hafi verið skítugur og hundaskítur um öll gólf hússins. Þá hafi þeir verið án vatns og smávegis af þurrmat hafi verið í einni skál í húsinu.

Þá kom fram í skýrslu dýralæknis kemur að feldur hundanna hafi verið flæktur, saur og úrgangur hafi verið fastur í feld þeirra og klær orðnar aflaga vegna vanhirðu á klippingu. Jafnframt hafi verið slæm reykinga- og vanhirðulykt af hundunum, sem voru með tannstein og tannholdsbólgu.

Það var samdóma álit lögreglu og Matvælastofnunar að aðbúnaður og ástand hundanna væri óboðlegur. Og líkt og áður segir ákvað MAST að framkvæma vörslusviptingu, og hundarnir teknir í burtu.

Eigandinn kærði ákvörðunina og sagði að ekki hefði verið sýnt fram á að ástand og aðbúnaður hundana hafi verið líkt og lýst er að ofan til lengri tíma. Um hafi verið að ræða tilfallandi ástand.

Að sögn eigandans fengu hundarnir fengið niðurgang eftir að hafa komist í roast beef samloku sem dóttir eigandans hafði verið að borða og af þeirri ástæðu hafi myndast skítakleprar í feldi þeirra. Eigandinn hafi ætlað að þrífa hundana en ekki verið búinn að því þegar lögreglu bar að garði. Þar að auki hafi hann ekki komist í það að klippa neglurnar á hundunum, en það hafi staðið til.

Jafnframt vildi eigandinn meina að Matvælastofnun hafi ekki gætt meðalhófs og tekið umrædda ákvörðun, sem væri íþyngjandi, fljótfærnislega.

Ráðuneytið komst að þeirri niðurstöðu í úrskurði sínum að gætt hafi verið að meðalhófi. Öll gögn málsins bendi til þess að úrbætur þoldu enga bið. Ráðuneytið staðfesti því að ákvörðun MAST hafi verið réttmæt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×