Rafíþróttir

Ís­lands­meistara­titillinn sá þriðji í sögu Þórsara

Snorri Már Vagnsson skrifar
Hafþór "Detinate" Örn, Pétur "Peterr" Örn, Alfreð "Allee" Leó og Davíð "Dabbehh" Matthíasson.
Hafþór "Detinate" Örn, Pétur "Peterr" Örn, Alfreð "Allee" Leó og Davíð "Dabbehh" Matthíasson.

Rafíþróttalið Þórs í Counter-Strike varð á dögunum Íslandsmeistari í Counter-Strike er þeir unnu Ljósleiðaradeildina. Íslandsmeistaratitillinn er sá þriðji sem karlalið Þórs í hópíþrótt vinnur Íslandsmeistaratitil.

Tvisvar áður hafa Þórsarar orðið Íslandsmeistarar, en það var árin 1993 og 2001. Báðir voru titlarnir í innanhússfótbolta. Bjarni Sigurðsson, formaður Rafíþróttadeildar Þórs sagði strákana „ekki vera bara að skrifa sögu rafíþróttadeildarinnar heldur eru þeir að setja sig á spjöld sögunnar hjá Þór,“ sagði Bjarni er hann spjallaði við heimasíðu Þórs.

Þórsarar sigruðu Ljósleiðaradeildina í algjörum úrslitaleik gegn liði NOCCO Dusty þann 17. febrúar, en Akureyringarnir höfðu tveggja stiga forskot á erkifjendurna í Dusty fyrir leik. Þórsarar unnu deildina því með fjögurra stiga forskoti eftir að haldast í hendur við Dusty nánast allt tímabilið.

Næst á dagskrá fyrir íslensk Counter-Strike lið er Stórmeistaramótið, en það hefst þann 26. febrúar og má nálgast upplýsingar um mótið á frag.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×