Skoðun

Hin meintu „ill­virki"

Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar

Það sem allir virðast vera að adda mér og Árna Tómasi saman er best að ég komi með annan pistil handa ykkur.

Árni Tómas skrifaði uppá fyrir son minn, sprautufíkil til margra ára með margar mis gagnlegar meðferðir að baki og fangelsisdvalir.

Árni Tómas sá honum fyrir dópi svo hann sá enga ástæðu til að sækja sér hjálp við fíkn sinni, hann var orðin mjög veikur í restina, en kom sér sem betur fer inn á Vog sem tók strax á móti honum, hann var það veikur.

Hann var ekki að byggja upp neitt samband við sína nánustu og bjó á Gistiskýlinu þennan tíma.

Hann þurfti ekki að koma með neina pappíra né félagsráðgjafa með sér til Árna Tómasar, sá sem fór með honum var maður sem hann hafði kynst ekki löngu áður, þar sem minn var að stela en hinn að reyna að finna stolna muni fyrir fólk.

Hann staðfesti að minn væri morfínfíkill og minn sagði hvað hann þyrfti stóran skammt og Árni Tómas skrifaði uppá....

Eitt skiptið sem hann sprautaði sig með lyfi uppá skrifuðu af Árna Tómasi hné hann niður, hann var í mánuð á spítala ekki hugað líf og ber varanlegan skaða til lífstíðar eftir dagskammtinn sinn frá Árna Tómasi.

Það ver ekki eitruð pilla sem hann fékk á götunni. heldur lyf úr apóteki ávísað af Árna Tómasi

Árni Tómas gagnrýnir Valgerði Rúnarsdóttur yfirlækni á Vogi og sakar um blekkingar, en hann er líka að blekkja, blekkja sig, aðstandendur og fíklana sjálfa og það sem verra er stofna þeim í hættu.

Ég kalla eftir opinberi rannsókn á máli Árna Tómasar, hvort hinir meintu fíklar hans voru allir í raun fíklar og hvernig staða þeirra var áður og hvernig þeim reiddi af á meðan þau fengu morfín hjá Árna Tómasi.

Sumir af meintum fíklum voru dópsalar og aðrir óvandaðir menn, margir fíklar voru í annarskonar neyslu en skiptu í morfín því þau fengu það ókeypis og án vandræða hjá Árna Tómasi.

Ég tel fulla ástæðu fyrir rannsókn af landlækni og lögreglu líka.

„Það fer engin í meðferð með „gáttina“ fulla af morfíni“ skrifaði fíkill í lokuðu spjalli sem ég var hluti af.

Ég hef hugað að málsókn á hendur Árna Tómasi fyrir að skaffa syni mínum lyf sem héldu honum frá meðferðum sem hann þurfti á að halda, og fyrir að valda næstum dauða hans og vegna varanlegs líkamskaða sem hann hlaut.

Ég ítreka það aftur að Árni Tómas er gigtarlæknir og var ekki með neitt eftirlit með „fíklunum sínum“

Og aftur fá Alma Möller Landlæknir og Valgerður Rúnarsdóttir, forstjóri á Sjúkrahúsinu Vogi "eitraða pillu" frá Árna Tómasi

Höfundur er með réttlætiskennd.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×