Íslenski boltinn

Blikar til­kynna fram­herjann Stokke

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Stokke er mættur í Kópavoginn.
Stokke er mættur í Kópavoginn. Breiðablik

Norski framherjinn Benjamin Stokke er genginn í raðir Breiðabliks og mun spila með liðinu í Bestu deild karla í knattspyrnu á komandi leiktíð.

Hinn 33 ára gamli Stokke er engin smásmíð en hann er 1,91 metri á hæð og spilar eingöngu sem fremsti maður. Hann hefur komið víða við á sínum ferli en lék síðast með Kristiansund í norsku B-deildinni.

Stokke skoraði 16 mörk á síðustu leiktíð en hefur alls skorað 73 mörk í efstu tveimur deildum Noregs. Þá hefur hann einnig spilað í dönsku úrvalsdeildinni með Randers.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×