Innlent

Getur ekki flutt inn því það býr kona í í­búðinni hennar

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Anastasia Vovk gistir nú á hóteli þar sem önnur kona leigir sömu íbúð og hún hafði fengið á leigu.
Anastasia Vovk gistir nú á hóteli þar sem önnur kona leigir sömu íbúð og hún hafði fengið á leigu. Vísir

Kona sem gerði húsaleigusamning um íbúðarhúsnæði á Bifröst sem tók gildi þann 1. mars getur ekki flutt inn því önnur kona býr í íbúðinni hennar. Sú er með leigusamning vegna sömu íbúðar fram í ágúst.

„Ég vil fyrst og fremst fá endurgreitt,“ segir Anastasia Vovk í samtali við Vísi. Um er að ræða íbúðir sem leigðar eru í tveimur fjölbýlishúsum á Bifröst undir heitinu Sjónarhóll. Þær eru leigðar út af Miðgarði. Ekki hefur náðst í forsvarsmenn Miðgarðs vegna málsins.

Anastasia segir Miðgarð því neita að afhenda sér íbúðina sem hún hafi tekið á leigu og ekki vilja endurgreiða henni, nema hún borgi gjald fyrir riftun á leigusamningi sem nemur hálfu ári af leigu. Anastasia hefur þegar borgað 180 þúsund krónur fyrir mars mánuð af íbúðinni sem önnur kona býr nú í.

„Núna búum ég og sonur minn á hóteli. Ég borgaði eina nótt, rúmar tvöhundruð evrur. Ég vil bara fá peninginn minn til baka svo ég geti fundið mér aðra íbúð til að leigja, í Borgarnesi eða eitthvað,“ segir Anastasia.

Hún segir íbúa í húsunum á Bifröst afar óánægða með ýmislegt í húsunum. Nefnir hún meðal annars vandræði með pípulagnir.

Þannig að þú ert í raun heimilislaus?

„Eins og staðan er núna. Ég vil bara losna undan þessum samningi til að komast eitthvert annað,“ sagði Anastasia.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×