Skoðun

Með hjartað á réttum stað

Ástþór Jón Ragnheiðarson skrifar

Það er óhætt að segja að útlendingamál hafa farið mikinn í samfélagsumræðunni á undanförnum vikum. Mismunandi sjónarmið, áherslur og skoðanir hafa átt sér stað, sem er ekki óeðlilegt í lýðræðissamfélagi. Við megum vera ósammála og við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna um málefni líðandi stundar. En einhvern veginn virðist þetta ekki vera raunin. Það hvarflar hreinlega að manni að við séum ófær um að geta átt samtalið um þessi mál og áhrifin, sama hve lítil eða mikil við teljum þau vera, á samfélagið okkar.

Þegar upp er staðið þá hafa orðið gríðarlegar breytingar á okkar samfélagi undanfarin ár, hvort sem við teljum það jákvæðar eða neikvæðar breytingar. Hlutfall þeirra sem hér búa og eru af erlendi bergi brotnir hefur hækkað. Hælisleitendum og flóttafólki hefur fjölgað og öllum breytingum fylgja áskoranir. Við leysum ekki áskoranirnar með því að loka augunum og það er okkur eðlilegt að óttast breytingar eða í það minnsta staldra aðeins við þær. Að því sögðu þá skiptir að sjálfsögðu máli hvernig við tökumst á við þessar áskoranir, en það verður ekki gert með því að úthrópa hvort annað þegar okkur mislíkar orðræðan. Sértu talinn til vinstri í útlendingamálum ertu úthrópaður no-borders aktívisti sem vill bara stjórnleysi. Sértu talinn til hægri í útlendingamálum ertu úthrópaður ómannúðlegur rasisti. Hvernig í ósköpunum á umræðan að geta orðið árangursrík þegar við nálgumst hana svona? Hvoru megin sem fólk er talið þá verðum við að ætla að í grunninn sé þetta fólk sem er annt um samfélagið sitt, þó svo okkur kunni að þykja nálgunin röng. Er við þær aðstæður eina rétta að taka samtalið og beina fólki á rétta braut.

Ég fagna umræðunni. Ég fagna því að fólk tjái sig um það sem veldur þeim áhyggjum í þessum málefnum. En um leið og fólk tjáir sig þá verðum við líka að huga að því hvernig við svörum því. Sé tjáningin vitlaus eða að fólk fari með rangt mál þá getur það ekki verið rétt viðbragð að úthrópa viðkomandi sem fáfróðan rasista, eða á hinn bóginn að úthrópa viðkomandi “góða fólkið” sem hefur ekki skilning á aðstæðum. Það gengur ekki. Við eigum að fagna því að fólk spyrji spurninga og tjái sig um það sem veldur þeim áhyggjum, það er svo á okkar ábyrgð að leiðbeina og taka samtalið.

Ég trúi því að við séum flest með hjartað á réttum stað. Ég trúi því að hvort sem fólk tjáir sig svona eða hinsegin í málefnum útlendinga, þá liggi í grunninn góð hugsun að baki, ekki eintómt hatur og mannvonska. Ég vona að við sem samfélag getum tekið umræðuna á hærra plan og nálgast samtalið út frá málefnum, rökum, tölum og gögnum. Það gagnast umræðunni engan veginn að skapa sér andstæðinga í öllum hornum.

Höfundur er formaður ASÍ-UNG.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×