Lífið

Hefur aldrei heyrt um meint líkindi og horfir ekki á for­múluna

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Vilhjálmur Birgisson er ekki mikill áhugamaður um Formúlu 1.
Vilhjálmur Birgisson er ekki mikill áhugamaður um Formúlu 1. Vísir/Einar

Vilhjálmur Birgisson verkalýðsleiðtogi á Akranesi og formaður Starfsgreinasambands Íslands segist aldrei hafa heyrt um það að hann sé líkur Jos Verstappen, föður heimsmeistarans í Formúlu 1, Max Verstappen.

Glöggir aðdáendur formúlunnar vöktu athygli á meintum líkindum þeirra Vilhjálms og Jos í Facebook hópi aðdáenda formúlunnar. Jos Verstappen hefur verið mikið í fréttum að undanförnu vegna innanhúserja innan Red Bull liðsins sem hefur farið með himinskautum í íþróttinni undanfarin ár.

Vilhjálmur hefur ekki heyrt minnst á líkindin við Jos Verstappen, fyrr en nú. Skjáskot

Þar hefur Jos lýst því yfir opinberlega að hann vilji losna við Christian Horner liðsstjóra liðsins. Horner hefur sjálfur verið mikið í fréttum undanfarnar vikur en hann var til rannsóknar vegna óviðeigandi hegðunar í garð samstarfskonu.

Hann var hreinsaður af öllum ásökunum en daginn eftir var skilaboðum hans til konunnar lekið til fjölmiðla. Hann er giftur kryddpíunni Geri Halliwell sem mætti á formúluna í Bahrain síðustu helgi og var þar af flestum talin vera mætt til þess að stemma stigu við háværum skilnaðarorðrómum.

Jos var sjálfur ökumaður í formúlunni en þó aldrei eins sigursæll og sonur hans sem unnið hefur heimsmeistaratitilinn síðustu þrjú ár. Þá eiga þeir Jos og Vilhjálmur það sameiginlegt að segja alltaf sína meiningu. Hvorugur er hræddur við að taka slaginn þegar nauðsyn ber undir.

Fréttastofa bar það undir Vilhjálm hvort hann hefði áður fengið að heyra af því að hann ætti mögulegan tvífara í hinum hollenska Jos. „Nei veistu ég hef ekki fengið ábendingu um þessi samlíkingu og nei ég hef ekki fylgst mikið með formúlunni.“


Tengdar fréttir

Kyssti eiginmanninn í skugga skandals

Kryddpían Geri Halliwell mætti á fyrstu keppni formúlunnar í ár í Bahrain í gær til að vera viðstödd keppnina ásamt eiginmanni sínum Christian Horner. Um stuðningsyfirlýsingu er að ræða að sögn erlendra miðla.

Ráku konuna sem sakar Horn­er um ó­við­eig­andi hegðun

Konan, sem starfaði hjá Formúlu 1 liði Red Bull Racing og sakar liðsstjórann Christian Horner um óviðeigandi hegðun, hefur verið leyst frá störfum. Þetta staðfestir talsmaður Red Bull samsteypunnar í samtali við BBC.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×