Enski boltinn

Keane snýr aftur á Instagram með mynd af sér og Solskjær

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Tveir á báti. Roy Keane og Ole Gunnar Solskjær í góðum gír.
Tveir á báti. Roy Keane og Ole Gunnar Solskjær í góðum gír. instagram síða roys keane

Eftir tveggja ára bið birti Roy Keane loks nýja mynd á Instagram. Hún er af honum og fyrrverandi samherja hans hjá Manchester United.

Keane byrjaði á Instagram snemma árs 2021 en hætti þar vorið 2022. Írinn sneri hins vegar aftur á samfélagsmiðilinn í gær.

Keane birti þá mynd af sér og Ole Gunnari Solskjær, brosandi á bát. „Sendið okkur skilaboð ef þið eruð að leita að þjálfara,“ skrifaði Keane við myndina.

Hann hefur ekki verið aðalþjálfari síðan hann hætti hjá Ipswich Town 2011. Solskjær var hins vegar síðast við stjórnvölinn hjá United á árunum 2018-21.

Keane hefur áhuga á að snúa aftur í þjálfun og hefur lýst yfir áhuga á að taka við írska landsliðinu. John O'Shea var ráðinn þjálfari þess til bráðabirgða á dögunum en ekki hefur enn fundist þjálfari til frambúðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×