Innlent

„Ég er bara skít­hrædd hérna“

Bjarki Sigurðsson skrifar
Myndir úr húsinu sem Sigurbjörg býr í.
Myndir úr húsinu sem Sigurbjörg býr í. Vísir/Rúnar

Öryrki óttast um líf sitt þar sem hún segir leigusala ekki standa við loforð um framkvæmdir svo húsnæðið sem hún býr í geti verið mannsæmandi. Hún segir ástandið versna með hverjum deginum.

Örfáum metrum frá Ráðhúsi Hafnarfjarðar býr Sigurbjörg Hlöðversdóttir, 62 ára öryrki. Hún hefur leigt þar níutíu fermetra íbúð síðan í desember á síðasta ári og borgar 200 þúsund krónur fyrir það mánaðarlega.

Klippa: Óttast um líf sitt í leiguhúsnæði

Geri ekki neitt sem hann segist ætla að gera

Þegar hún flutti inn segir hún leigusalann hafa lofað að gera ýmsar úrbætur á húsnæðinu svo hægt væri að búa þar. Fjórum mánuðum síðar hefur ekkert gerst. Víða má sjá rafmagnsvíra standa út í loft, sag má finna á ýmsum stöðum og í svefnherberginu vantar hluta af gólfinu.

Það vantar fjalir á gólfið í svefnherberginu.Vísir/Rúnar

„Hann ætlaði að gera allar endurbætur. Gólfin áttu fyrst og fremst að vera tilbúin áður en ég kom inn. Eldhúsið átti að vera tilbúið í desember og svo koll af kolli,“ segir Sigurbjörg. „Það er varla hægt að fara í sturtu og það er lífshætta hér út af rafmagni og þetta er ekki nógu gott.“

Lítið er af hlífum í kringum innstungur í húsinu.Vísir/Rúnar

Leigusalinn hóti henni

Glerið í glugganum í svefnherberginu passar ekki og því rignir og snjóar þangað inn. Hvorki er búið að festa vaskinn í eldhúsinu, né í baðherberginu. Baðherbergið lítur reyndar meira út eins og ruslakompa og þarf Sigurbjörg að sitja til að baða sig. Hún segir leigusalann ekki standa við nein loforð og að hann hóti henni reglulega.

Það vantar nokkra sentimetra upp á að glerið passi.Vísir/Rúnar

„Hann segist ætla að koma, kemur ekki. Svo segist hann koma eftir hádegi en kemur klukkan átta á kvöldin þegar ég er farin að sofa. Hann er búinn að fremja hér þrjú húsbrot. Kemur eftir að ég er farin að sofa eða þegar ég er að leggja mig. Ég hef orðið vitni að því í tvígang. Það stendur ekki steinn yfir steini hvorki ritað mál né orð,“ segir Sigurbjörg.

Sigurbjörg Hlöðversdóttir býr í húsnæðinu.Vísir/Rúnar

Skíthrædd í húsinu

Hennar versti ótti er að það kvikni í húsinu.

„Ég er bara í rúst. Ég er bara skíthrædd hérna. Ég er skíthrædd. Þetta er ömurlegt að geta ekki vaskað upp, þvegið þvott, farið í sturtu. Ég er svo stressuð að ég er fara að grenja núna,“

Svona lítur baðherbergið út.Vísir/Rúnar

Komin með nóg

Ástandið versni með hverjum deginum og þegar fréttamaður rölti í gegnum húsið virtist allt vera við það að hrynja.

„Ég sofna alveg en svo um leið og ég vakna. Þá hugsa ég „Ómægad hvað er næst.“ Hann er búinn að senda mér alls konar hótanir á Facebook og í tölvupósti. Ég er bara tuðari og vitleysingur og kelling. Það sé eitthvað að mér. Þetta er orðið gott sko,“ segir Sigurbjörg.

Illa frágenginn rafmagnsvír.Vísir/Rúnar

Sag er um allar trissur í húsinu.Vísir/Rúnar

Snúrumálin eru leyst með hnútum.Vísir/Rúnar

Vaskurinn er ekki festur við borðið, sem er í raun hurð sem búið er að saga gat í.Vísir/Rúnar


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×