Skoðun

Ó­missandi inn­viðir

Finnur Beck skrifar

Innviðir orku- og veitustarfsemi eru hér, sem annars staðar, ómissandi fyrir samfélagið allt. Ísland á langa og farsæla sögu að baki í uppbyggingu orku- og veituinnviða. Hvort sem litið er til vatnsveitu, hitaveitu, fráveitu, dreifi- og flutningskerfa rafmagns eða orkuframleiðslu.

Víða kreppir skórinn að og áratuga gamlir innviðir hafa á mörgum sviðum náð þolmörkum eða standa frammi fyrir auknum kröfum evrópsks regluverks. Samfélagslegar breytingar s.s. með örri fólksfjölgun, þéttingu byggðar og mikilli aukningu ferðamanna hafa t.d. víða sett þrýsting á veitukerfi. Kröfur um hreinsun fráveitu sem berast okkur að mestu frá Evrópu munu kosta tugi milljarða á næstu árum og áratugum. Markmið um útfösun jarðefnaeldsneytis og stóraukin eftirspurn eftir grænni orku um heim allan hafa aukið eftirspurn eftir grænu rafmagni sem aldrei fyrr. Ofan á framangreint hafa hamfarirnar á Reykjanesskaga sett óheyrilegt álag á innviði okkar, sem undirstrikar um leið mikilvægi þessara innviða fyrir órofið gangverk samfélagsins.

Samfélagslegt afrek

Á ársfundi Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja, í gær var varpað ljósi á ómissandi innviði orku- og veitustarfsemi. Hvergi hefur reynt eins mikið á þessa innviði og mikilvægi þeirra verið eins ofarlega á baugi eins og á Reykjanesskaga undanfarna mánuði. Fyrir tilstilli öflugs starfsfólks orku- og veitufyrirtækja sem mætt hefur samhent í þau verkefni sem eldsumbrot og jarðskjálftar hafa kallað á dag frá degi, hefur tekist að halda úti nær órofinni virkni og starfsemi orku- og veitukerfa. Þetta er samfélagslegt afrek sem verður lengi í minnum haft.

Nýtum tækifærin

Á ársfundinum var augum einnig beint að orkuöryggi og þá hættubraut sem við erum nú komin á í orkuöflun hér á landi og það áður en komið er að stærstu stökkunum sem þörf verður á til að af orkuskiptum verði. Í ávarpi umhverfis- orku og loftslagsráðherra á fundinum kom fram að vegna stöðu orkumála hafi tækifæri til uppbyggingar á Íslandi nú þegar siglt fram hjá.

Stjórnsýsla hæfi verkefninu

Samfélagið mun verða af miklum tækifærum og hugsanlega horfa upp á samdrátt ef ekki verður hægt að mæta orkuþörf orkuskiptanna. Samorka telur að í þessu samhengi hafi verndar- og orkunýtingaráætlun ekki náð að mæta þörfum samfélagsins, heldur þvert á móti. Stjórnsýslu orkumála verður að endurskoða vandlega og færa hana í horf sem tekur mið af nútímanum og því verkefni sem blasir við með hliðsjón af loftslags- og orkuskiptamarkmiðum. Þá verða kraftar samkeppninnar með tilheyrandi nýsköpun að vera í forgrunni til að tryggja hér græna orkuframtíð.

Farsæl saga landsins í uppbyggingu orku- og veituinnviða veitir okkur innblástur og hugrekki í að halda áfram af sama krafti og elju og kynslóðirnar á undan okkur. Þær lögðu grunninn að því farsæla og góða þjóðfélagi sem við nú búum í. Ábyrgð okkar gagnvart næstu kynslóðum er ekki minni.

Innviðir orku- og veitugeirans eru ómissandi fyrir heimilin, atvinnulífið og fyrir efnahaginn. Það er mikið undir að uppbygging þessara innviða næstu ár og áratugi taki mið af þörfum heimila og atvinnulífs og tryggi um leið efnahagslega hagsæld samfélagsins alls til framtíðar.

Höfundur er framkvæmdastjóri Samorku.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×