Lífið

Frumfluttu nýtt lag með Á móti sól á undan sveitinni sjálfri

Stefán Árni Pálsson skrifar
Magni flutti lagið nýja síðasta föstudagskvöld.
Magni flutti lagið nýja síðasta föstudagskvöld.

Í síðasta þætti af Kvöldstund með Eyþóri Inga var gestasöngvarinn Magni Ásgeirsson sem fór algjörlega á kostum í þættinum.

Hann flutti lag sem ber heitið Okkur líður samt vel og er það nýtt lag sem verður á komandi plötu sveitarinnar Á móti sól.

Lagið fjallar í raun um samtal sem Magni átti eitt sinn við tónlistarmanninn Vigni Snæ þar sem hann vældi mikið yfir því hvað hann væri orðinn gamall.

Hér að neðan má sjá þegar Magni og Eyþór flutti lagið Okkur líður samt vel. Næsti þáttur af Kvöldstund með Eyþóri Inga verður á föstudagskvöldið strax á eftir fréttum á Stöð 2. 

Klippa: Frumfluttu nýtt lag með Á móti sól





Fleiri fréttir

Sjá meira


×