Innlent

Frum­varpið von­brigði og hefði viljað metnaðar­fyllri að­gerðir

Magnús Jochum Pálsson og Margrét Helga Erlingsdóttir skrifa
Alexandra Ýr van Erven, forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta, segir frumvarp háskólamálaráðherra um Menntasjóð námsmanna vera vonbrigði og að frumvarpið gangi ekki nógu langt.
Alexandra Ýr van Erven, forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta, segir frumvarp háskólamálaráðherra um Menntasjóð námsmanna vera vonbrigði og að frumvarpið gangi ekki nógu langt. Vísir/Sigurjón

Forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta segir frumvarp háskólamálaráðherra um Menntasjóð námsmanna vera vonbrigði. Það þrengi að möguleikum fólks sem flokkað er sem ótryggir lántakar til að stunda nám og þá sé of skammt gengið í breytingum á styrkjafyrirkomulagi.

BHM og Landssamtök íslenskra stúdenta (LÍS) hafa skrifað umsögn um frumvarp háskólaráðherra um menntasjóð námsmanna. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskólaráðherra leggur til að ábyrgðarmannakerfið verði lagt niður að fullu og að ábyrgðarmenn lánanna verði felldir á brott. 

Alexandra Ýr van Erven, forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta, fagnar þessu skrefi, það sé löngu tímabært en gagnrýnir um leið að ekki sé tekið utan um þá sem kallaðir eru ótryggir lántakar.

„Í lögum hefur verið þessi undantekning fyrir þá sem kallaðir eru ekki tryggir lántakar. Þau hafa getað fengið lán með því að koma með ábyrgðamenn en með þessum breytingum þá er verið að leggja stein í götu þeirra og segja, nú getið þið einfaldlega ekki fengið lán og það er auðvitað virkilega slæmt og þetta er fólk til dæmis á vanskilaskrá og við þurfum að hafa það í huga að fólk getur verið á vanskilaskrá út af félagslegum ástæðum, það hefur kannski misstigið sig,“ segir Alexandra.

Ráðherra gleymi hlutverki námslánakerfisins

Alexandra segir að málið sé alvarlegt. Námslánakerfið eigi að veita fólki tækifæri án tillits til efnahagslegra aðstæðna.

„Þarna hefur ráðherra einfaldlega gleymt því hvert hlutverk námslánakerfisins er en það er auðvitað að vera félagslegur jöfnunarsjóður og veita fólki tækifæri á að stunda nám án tillits til félagslegra eða efnahagslegra ástæðna,“ segir hún.

Alexandra segist þá hafa bundið vonir við metnaðarfyllri aðgerðir í þágu stúdenta.

„Það eru einfaldlega gífurleg vonbrigði að ráðherra ætli ekki að hreyfa neitt við þessu gífurlega háa vaxtaþaki og ráðherra ætlar ekki heldur að afnema vaxtaálag á lántakendur þannig að lántakar sitja ennþá uppi með þessar háu greiðslur og stuðningur er einfaldlega ekki bættur neitt svakalega.“


Tengdar fréttir

Leggur til að ríkið hætti að ganga á eftir ábyrgðarmönnum námslána

Ekki verður lengur gengið á eftir ábyrgðarmönnum námslána til innheimtu skuldar ef nýtt frumvarp háskólaráðherra nær fram að ganga. Ráðherra segir sanngjarnt að lántakandinn sjálfur beri ábyrgð á sínum skuldum og vill afnema ábyrgðarmannakerfið í heild sinni.

Óskar eftir gögnum um á­byrgðar­menn náms­lána

Háskólaráðherra hefur óskað eftir gögnum um þá ábyrgðamenn sem skildir voru eftir þegar ábyrgðarmannakerfi á lánum var lagt af. Hún segir hrakfarir áttræðrar konu, sem stendur frammi fyrir fjárnámi, sýna að tilefni sé til endurskoðunar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×