Lífið

Baron Cohen og Fisher skilin eftir meira en tuttugu ára sam­band

Kjartan Kjartansson skrifar
Sasha Baron Cohen og Isla Fisher þegar allt lék í lyndi árið 2021.
Sasha Baron Cohen og Isla Fisher þegar allt lék í lyndi árið 2021. Vísir/EPA

Breski gamanleikarinn Sacha Baron Cohen og ástralska leikkonan Isla Fisher eru skilin eftir meira en tuttugu ára samband. Tilkynning þeirra kemur í skugga ásakana mótleikkonu Baron Cohen um óviðeigandi hegðun hans á tökustað á sínum tíma.

Hjónin fyrrverandi tilkynntu um skilnaðinn í færslu á samfélagsmiðlinum Instagram en hann átti sér formlega stað í fyrra. Baron Cohen og Fisher kynntust fyrst árið 2001 og giftu sig árið 2010. Þau eiga þrjú börn á aldrinum níu til sautján ára saman.

Baron Cohen, sem er hvað þekktastur fyrir túlkun sína á persónunum Ali G og Borat, hefur átt í vök að verjast undanfarnar vikur en Rebel Wilson, ástralska mótleikkona hans í gamanmyndinni „Grimsby“ árið 2016, sakar hann um að hafa áreitt sig kynferðislega á tökustað. Hann neitar þeim ásökunum og segir þær sannanlega rangar, að sögn Sky News.

Fisher, sem lék einnig í myndinni, hefur ekki komið fyrrverandi eiginmanni sínum til varnar í deilu hans við Wilson, að sögn slúðurmiðilsins TMZ. Skilnaðinn segir miðilinn hafa komið sem þruma úr heiðskíru lofti þar sem þau hafi tiltölulega nýlega sést að því er virtist hamingjusöm saman opinberlega.

„Við höfum alltaf sett friðhelgi einkalífs okkar í fyrsta sætið og við höfum hægt og rólega unnið okkur í gegnum þessa breytingu. Við deilum að eilífu tryggð okkar og ást á börnunum okkar,“ sagði í færslunni sem Baron Cohen og Fisher birtu á sama tíma á samfélagsmiðlum.


Tengdar fréttir

Sacha Baron Cohen æfareiður út í Rebel Wilson

Bandaríski leikarinn Sacha Baron Cohen er æfareiður út í kollega sinn áströlsku leikkonuna Rebel Wilson vegna fullyrðinga um hann sem hún leggur fram í væntanlegri endurminningarbók sinni. Leikkonan segir að hún muni ekki breyta bókinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×