Innlent

Maður með kókaín í niður­suðu­dósum fær mildari dóm

Jón Þór Stefánsson skrifar
Efnin voru flutt til landsins í flugi til Keflavíkurflugvallar frá Brussel í Belgíu.
Efnin voru flutt til landsins í flugi til Keflavíkurflugvallar frá Brussel í Belgíu. Vísir/Vilhelm

Landsréttur mildaði í dag dóm yfir manni sem hafði verið dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjaness í desember. Niðurstaða Landsréttar var hins vegar að maðurinn skyldi sitja inni í tvö ár og sex mánuði.

Maðurinn, sem er rúmlega tvítugur og heitir Maxence Paul Daniel Joannes, var ákærður fyrir stórfellt fíkniefnabrot en hann kom til landsins með flugi þann 30. september síðastliðinn. Styrkleiki efnanna var 77 til 84 prósent.

Efnin komu til landsins með flugi frá Brussel í Belgíu til Keflavíkurflugvallar. Maðurinn faldi þau í tösku sinni í fjórum niðursuðudósum.

Maðurinn játaði brot sín skýlaust, en hann hefur ekki sætt refsingu hér á landi áður.

Líkt og áður segir hlaut hann þriggja ára dóm í héraði, og var gert að greiða rúma milljón króna í sakarkostnað.

Við ákvörðun refsingar í héraði var litið til þess að um umtalsvert magn að sterkum fíkniefnum væri að ræða. Á móti var litið til ungs aldurs sakborningsins, og að hann hafi aðstoðað lögreglu við rannsóknina.

Landsréttur vísaði til forsenda dóms héraðsdóms, en sagði hæfilega refsingu vera tveggja og hálfs árs fangelsi, frekar en þrjú ár.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×