Innlent

Skoðar rót­tækar breytingar á vaxta­bóta­kerfinu

Elísabet Inga Sigurðardóttir og Margrét Helga Erlingsdóttir skrifa
Sigurður Ingi Jóhannsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson er fjármála- og efnahagsráðherra. Vísir/Vilhelm

Fjármálaráðherra skoðar nú gera róttækar breytingar á vaxtabótakerfinu. Alþjóðlegar stofnanir á borð við Alþjóðabankann og OECD hafi lengi haft margt við kerfið að athuga á liðnum árum og því sé tilefni til að endurskoða það í heild.

Ráðherra segir ekki um aðhaldsaðgerð að ræða, nýta þurfi fjármunina með skynsamlegri hætti en nú. Hann hefur í hyggju að setja á fót starfshóp um endurskoðun á opinberum húsnæðisstuðningi í samanburði við önnur Norðurlönd.

„Við höfum auðvitað sjálf séð að í þessu kerfi hafa bæturnar farið í vaxandi mæli til þeirra sem hafa hærri tekjurnar og á sama tíma er hið opinbera meira að halda utan um þá sem þurfa aðstoð við að eignast húsnæði eða leigja húsnæði. Fjármununum væri væntanlega betur varið þar.“

Fyrst og fremst niðurgreiðsla til fjármálafyrirtækja

Þannig vaxtabótakerfið verður lagt niður í þeirri mynd sem við þekkjum nú?

„Ég get ekki sagt það núna. Við erum að fara af stað í þessa vinnu en umsvif þess hafa minnkað á liðnum árum og margir aukin heldur bent á að vaxtabætur séu kannski fyrst og fremst niðurgreiðsla til fjármálafyrirtækja en ekki beinn stuðningur við fólkið. Þannig það er hægt að koma honum betur fyrir með öðrum hætti og koma til stuðnings þeim sem mest þurfa á þeim að halda en ekki endilega þeim í hærri tekjuhópum þannig ég held að það sé margt sem bendi til þess að það sé mikilvægt að endurskoða kerfið.“

Ekki aðhaldsaðgerð

Ef yrðu gerðar breytingar, breytast þá upphæðirnar í kerfinu? Er þetta aðhaldsaðgerð?

„Nei fyrst og fremst er verið að skoða hvort við getum nýtt þessa fjármuni í húsnæðisstuðninginn með skynsamlegri hætti en við höfum verið að gera.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×