Skoðun

#Katrín er minn for­seti

Elín Hirst skrifar

Leiðir okkar Katrínar Jakobsdóttur lágu fyrst saman á fréttastofu RÚV fyrir rúmum 20 árum þar sem hún vann sem ungur íslenskufræðingur við að lesa yfir fréttatexta og koma með tillögur til fréttamanna um betra málfar. Ég var fréttastjóri á þessum tíma og mér féll strax vel við þessa ungu og vandvirku konu, sem tók brosandi á móti textum frá okkur fréttafólkinu sem voru margir misjafnlega góðir íslensku og færði til betri vegar.

Næst urðum við samstarfsmenn á Alþingi en þingmenn fyrir ólíka flokka. Hennar fallega framkoma, rökfesta, gáfur og virðing fyrir öðru fólki heillaði mig sem fyrr. Samskipti urðu síðan nánari þegar við voru sessunautar í þingsal einn þingvetur. Minn flokkur var í stjórn en flokkur Katrínar í stjórnarandstöðu. En Katrín hafði svo mikla úgeislun og góða nærveru að það var afar gott að hafa hana við hlið sér.

Glatt á hjalla á fundi í utanríkisnefnd Alþingis árið 2015. Frá vinstri: þingmennirnir Katrín Jakobsdóttir, Össur Skarphéðinsson, Elín Hirst og Birgitta Jónsdóttir.

Snemma ár árinu 2023 fékk ég svo tækifæri að starfa náið með Katrínu í nokkra mánuði í forsætisráðuneytinu þar sem ég skipulagði meðal annars hringferð hennar um landið til þess að hún sem forsætisráðherra átti samtal við landsmenn um stefnumótun fyrir Sjálfbært Ísland, þ.e. um að hvernig við við snúum af þeirri vegferð að ofnýta auðlindir Jarðar sem mun koma niður á velsæld afkomenda okkar. Unga konan sem hafði staðið sig svo vel í hlutverki málfarsráðunautar á fréttastofu RÚV, var nú orðin forsætisráðherra og það var yndilegt að fylgjast með þvi hvernig hún skilaði því verki. Yfirleitt var hún mætt fyrst til vinnu í stjórnarráðshúsinu, alltaf var opið inn til hennar þegar hún var ekki með fundi, hún var afar vel inn í öllum þeim fjölmörgu málum sem heyrðu undir forsætisráðuneytið, og hafði víðtæka yfirsýn. Ég fylgdist einnig af aðdáun með glæsilegri framkomu á alþjóðavettvangi, fylltist stolti fyrir Íslands hönd og þótti hún bera af í hópi helstu leiðtoga heims og næsta dag var hún komin aftur á fullt í ráðuneytinu.

Ég var því afar ánægð þegar Katrín ákvað að gefa kost á sér sem næsti forseti Íslands, því engan þekki ég sem myndi sóma sér betur í því embætti. #Katrín er minn forseti.

Höfundur er fyrrverandi fréttastjóri Stöðvar 2 og RÚV sjónvarps og alþingismaður.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×