Lífið

Myndaveisla: Athafnakonur fögnuðu 25 ára af­mæli á Edition

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Fyrrverandi formenn FKA frá vinstri: Jónína Bjartmarz, Linda Pétursdóttir, Katrín S. Ólafsdóttir, Margrét Kristmannsdóttir, Hafdís Jónsdóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir.
Fyrrverandi formenn FKA frá vinstri: Jónína Bjartmarz, Linda Pétursdóttir, Katrín S. Ólafsdóttir, Margrét Kristmannsdóttir, Hafdís Jónsdóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Silla Páls

Félag kvenna í atvinnulífinu (FKA) fagnaði 25 ára afmæli sínu með stórglæsilegri veislu á The Reykjavík EDITION. Prúðbúnar félagskonur komu saman og fögnuðu tímamótunum á dögunum.

Kynnar kvöldsins voru þær Hulda Bjarnadóttir og Hanna Guðlaugsdóttir. Dagskráin var fjölbreytt og fræðandi þar sem hvetjandi erindi, einlæg samtöl og skemmtiatriði báru hæst.

Fyrrverandi formenn FKA stigu á svið með lifandi umræður leiddar af Þóreyju Vilhjálmsdóttur Proppé. Fyrrverandi formenn sem tóku yfir sviðið voru Hafdís Jónsdóttir, Jónína Bjartmarz, Katrín S. Ólafsdóttir, Linda Pétursdóttir, Margrét Kristmannsdóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Pallborðsumræðan vakti mikla lukku enda rifjaðir upp margir sigrar síðastliðna ára og síðast en ekki síst mikið hlegið og grín gert að því sem fór ekki eftir uppskrift.

Sofía Johnson fyrsti framkvæmdastóri FKA og Andrea Róbertsdóttir núverandi framkvæmdastjóri FKA.Silla Páls

Tækifæri samfélagsins til að njóta sérfræðiþekkingar og reynslu kvenna

Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA var stofnað 9. apríl 1999 og hét upphaflega Félag kvenna í atvinnurekstri. Áhersla félagsins er að efla tengslanet, ná sér í nýja þekkingu og persónulegan vöxt. Félagskonur eru tæplega 1450 talsins í dag.

Ljósmyndarinn og félagskona Silla Páls var á staðnum og fangaði stemninguna.

Íris Róbertsdóttir og Una Steinsdóttir.Silla Páls
Birna Rún Eiríksdóttir var með uppistand sem sló heldur betur í gegn.Silla Páls
Ljósmyndarinn Silla Páls.Silla Páls
Guðfinna S. Bjarnadóttir lokaði kvöldinu með hugvekju sem undirstrikaði mikilvægi samstöðu kvenna og með henni Hildur Petersen.Silla Páls
Silla Páls
Kynnar kvöldsins voru þær Hulda Bjarnadóttir félagskona FKA og Hanna Guðlaugsdóttir úr afmælisnefnd FKA.Silla Páls
Aðalheiður Guðmundsdóttir og Elfa Björk Björgvinsdóttir.Silla Páls
Það vantaði ekki fjörið hjá Instamyndum The Reykjavík EDITION.Silla Páls
Guðlaug Hrönn Jóhannsdóttir og Steinunn Inga Stefánsdóttir.Silla Páls
Erla Ósk Ásgeirsdóttir og Auðbjörg Ólafsdóttir.Silla Páls
Soffía Theodórsdóttir, stjórnarkonan Grace Achieng og Jasmina Vajzović Crnac.Silla Páls
Andrea Ýr Jónsdóttir ritari FKA, Heiðrún Arna Friðriksdóttir, Hafdís Jónsdóttir, Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri FKA og Bergrún Lilja Sigurjónsdóttir stjórnarkona FKA.Silla Páls
Bein útsendin í kvöldfréttum Stöðvar 2 og Margrét Helga Erlingsdóttir fréttakona mætti ásamt Einari Árnasyni.Silla Páls
Félagskonan Halla María Svansdóttir framkvæmdarstjóri Hjá Höllu í Grindavík mætti með dætur sínar.Silla Páls
Elísabet Sveinsdóttir, Ásta Kristjánsdóttir, Hjördís Johnson, Sólveig Pétursdóttir og Árnína Kristjánsdóttir.Silla Páls
rla Gunnhildardóttir, Ragnhildur Vigfúsdóttir og Þórey Sigþórsdóttir.Silla Páls
2. Afmælisnefnd FKA frá hægri: Helga Guðný Theodors, Hanna Guðlaugsdóttir, Elísabet Tanía Smáradóttir, Nathalia Bardales og á mynd vantar Steinunni Ragnarsdóttur.Silla Páls
Bjarma Didriksen, Svanlaug Jóhannsdóttir og Kristín Sigurðardóttir.Silla Páls
Það voru sex af fyrrverandi formönnum FKA sem stigu á svið og voru lifandi umræður leiddar af Þórey Vilhjálmsdóttur Proppé.Silla Páls
Kvennakórinn Katla kom og söng sig inn í hjörtu veislugesta.Silla Páls






Fleiri fréttir

Sjá meira


×