Innlent

Braust inn í tölvu með lítilli fyrir­höfn og ó­væntum af­leiðingum

Kristín Ólafsdóttir skrifar
David Jakoby sænskur hakkari (t.v.) fær aðstoð fréttamanns við tölvuinnbrot. Innslagið er að finna í spilaranum neðar í fréttinni.
David Jakoby sænskur hakkari (t.v.) fær aðstoð fréttamanns við tölvuinnbrot. Innslagið er að finna í spilaranum neðar í fréttinni. Skjáskot

Hver sem er getur orðið hakkari með hjálp gervigreindar, að sögn heimsfrægs hakkara sem nýlega var staddur hér á landi. Við mæltum okkur mót við hann og fylgdumst með tölvuinnbroti í rauntíma.

Svíinn David Jakoby á að baki næstum þrjátíu ára feril sem hakkari. Hann segir hraða þróun einkenna bransann og nýjar ógnir steðja stöðugt að.

„Gervigreind mun veita öllum sem ekki eru hakkarar möguleikann á því að verða hakkarar, af því að með henni hefurðu óheftan aðgang að öllum þeim upplýsingum sem til eru,“ segir David.

Hann nefnir dæmi; hakkari beinir spjótum sínum að stórfyrirtæki sem framleiðir vörur í tugþúsundatali. Eðlilegt sé að draga þá ályktun að fyrirtækið noti nafn á einhverri vörunni sem lykilorð.

„Þá er hægt að biðja gervigreindina að færa manni öll vöruheiti þessa tiltekna fyrirtækis og hún gefur manni einfaldlega lista. Þú þarft ekki að leita að neinu sjálfur.“

En stærsta áskorunin nú sé þó ekki gervigreindin heldur manneskjan, notandinn sjálfur, sem geri sér alltof litla grein fyrir eigin ábyrgð þegar kemur að netöryggi. Og David, heimsklassahakkarinn, ráðleggur okkur leikmönnum eftirfarandi:

„Ekki nota sama lykilorðið alls staðar! Í alvörunni, ekki gera það!“

Þá beri einnig að varast öll ókunnug tæki og tól - eins og David sýnir okkur í fréttinni hér fyrir ofan. Hann dregur fram hefðbundna iPhone-snúru... Eða hvað? David tengir snúruna við tölvu og réttir svo fréttamanni síma. Sérstök athygli er vakin á því að snúran snertir aldrei símann. Afleiðingar tölvuinnbrotsins og varnaðarorð Davids í kjölfarið eru sýnd í frétt Stöðvar 2 hér fyrir ofan, eins og áður segir.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×