Handbolti

Haukur og fé­lagar byrja undanúrslitin vel

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Haukur Þrastarson er ásamt félögum sínum kominn langleiðina inn í úrslitaeinvígið um pólska titilinn.
Haukur Þrastarson er ásamt félögum sínum kominn langleiðina inn í úrslitaeinvígið um pólska titilinn. Getty/Tom Weller

Haukur Þrastarson og félagar í pólska liðinu Industria Kielce unnu fyrri leikinn í undanúrslitaeinvígi sínu á móti KGHM Chrobry Głogów.

Kielce vann átta marka útisigur, 30-22 og er því í mjög góðum málum fyrir seinni leikinn á þeirra eigin heimavelli.

Kielce var bara einu marki yfir í hálfleik, 11-10, en keyrði yfir heimamenn í seinni hálfleiknum.

Þessi sigur þýðir að Kielce er komið með annan fótinn inn í úrslitaeinvígið á móti annað hvort Wisla Plock eða Zabrze sem mætast í hinu undanúrslitaeinvíginu.

Haukur skoraði fjögur mörk úr átta skotum í leiknum og var næstmarkahæstur í liði Kielce á eftir Szymon Wiaderny sem skoraði sex mörk. Artsem Karalek var með fjögur mörk eins og Haukur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×