Innlent

Steinunn Ó­lína skýtur föstum skotum á Katrínu

Jakob Bjarnar skrifar
Steinunn Ólína ritar pistil þar sem hún beinir spjótum sínum að stjórnvöldum, en hún segir að þau hafi leyft innviðum hér að grotna sem svo elur á skautun og sundrungu milli fólks.
Steinunn Ólína ritar pistil þar sem hún beinir spjótum sínum að stjórnvöldum, en hún segir að þau hafi leyft innviðum hér að grotna sem svo elur á skautun og sundrungu milli fólks. vísir/vilhelm/einar

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir forsetaframbjóðandi skýtur föstum skotum á Katrínu Jakobsdóttur meðframbjóðanda sinn í nýjum pistil.

Þetta gerir hún undir rós, á almennum nótum og án þess að nefna Katrínu á nafn en enginn þarf að velkjast í vafa um að hverjum spjótin beinast. Steinunn Ólína segir velferðarkerfið hafa á undanförnum áratug verið holað að innan. Og hagsmunir almennings fyrir borð bornir.

„Myndun nýrrar ríkisstjórnar sýnir svo ekki er um að villast að okkar ágætu stjórnarþingmönnum finnst þeir ekki þurfa að hlusta á gagnrýni almennings. Ríkisstjórnin er einkapartý sjálfskipaðra sem almenningur hefur engan aðgang að.“

Steinunn segir almannavarnir ekki njóta stuðnings stjórnvalda, náttúran má undan láta, opinber þjónusta hafi verið skert, heilbrigðiskerfið í molum, húsnæðismarkaðurinn í molum, ungu fólki er nánast gert ókleift að eignast húsnæði, almenningur vanræktur og svikinn.

„Hver vill trúa því að okkar þjóðkjörna fólk sé í raun gerendur í þessarri stigmagnandi óeiningu? Ójöfnuðarsamfélag sem ekki heldur utan um sitt fólk býr til kjöraðstæður fyrir svokallaða skautun eða sundrungu fólks í milli. Þetta er heimatilbúið vandamál. Stjórnvöld hafa vísvitandi valdið sundrungu hópa með því að hola að innan velferðarkerfið og sá illgresisfræjum í hjörtu Íslendinga,“ skrifar Steinunn Ólína og segir þjóðina eiga betra skilið.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×