Innlent

Börn sofi ekki úti í gos­móðunni suð­vestan­lands

Kjartan Kjartansson skrifar
Enn gýs á Reykjanesi. Móða sem myndast úr gosefnum liggur nú yfir Suðvesturlandi.
Enn gýs á Reykjanesi. Móða sem myndast úr gosefnum liggur nú yfir Suðvesturlandi. Vísir/Vilhelm

Sýnileg gosmóða frá eldgosinu á Reykjanesi liggur yfir Suðvesturlandi. Mælt er gegn því að börn sofi úti og að viðkvæmir reynir á sig utandyra þegar móðan er sýnileg jafnvel þó að mengun mælist ekki yfir mörkum á loftgæðamælum.

Gráblá móðan sem liggur yfir sunnan- og vestanlands er samsett úr brennisteinsögnum sem verða til við efnahvörf gosmakkarins frá gosinu við Sundhnúksgíga við súrefni í andrúmsloftinu. Veðurstofan segir að agnirnar mælist ekki á gasmælum sem mæla brennisteinsdíoxíð en þær sjáist sem móða þegar ákveðnum styrk sé náð.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur segir að hækkuð gildi fínna svifryks og brennisteinsdíoxíðs hafi mælst á mælistöðvum víða á höfuðborgarsvæðinu í dag.

Gosmóðan geti orskaða slen, höfuðverk, ertingu í augum og hálsi auk flensueinkenna. Þeir sem séu viðkvæmir fyrir í öndunarfærum og börn ættu því að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu. Síður viðkvæmir geti þó einnig fundið fyrir einkennum. 

Ekki er mælt með því að láta ung börn sofa úti í vagni við þessar aðstæður. Þetta á við þegar gosmóða er sýnleg jafnvel þótt gildi brennisteinsdíoxíðs séu lægri en heilbrigðisviðmið gera ráð fyrir. Í hægri breytilegri átt suðvestanlands eru spár um gasmengun ekki eins áreiðanlegar og þegar vindur er ákveðnari, að sögn Veðurstofunnar.

Bent er á í tilkynningu heilbrigðiseftirlitsins vegna gosmóðunnar að rykgrímur veiti enga vernd gegn gasmengun. Til þess að koma í veg fyrir að mengunin berist inn fyrir hússins dyr sé ráðlegt að lok gluggum og minnka umgengni um útidyr, hækka hita og lofta út um leið og loftgæði utandyra batna.

Áfram gýs úr einum gíg skammt austan við Sundhnúk á Reykjanesi. Enn er því hætta á gasmengun vegna makkarins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×