Sport

Hafa ekki á­hyggjur af fækkandi Elo-stigum

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Bárður Örn Birkisson og Hjörvar Steinn Grétarsson. Hjörvar er samkvæmt rauntímaskráningu eini skákmaðurinn hér á landi með yfir 2500 Elo-stig. 
Bárður Örn Birkisson og Hjörvar Steinn Grétarsson. Hjörvar er samkvæmt rauntímaskráningu eini skákmaðurinn hér á landi með yfir 2500 Elo-stig.  Skáksamband Íslands

Íslandsmeistaramótið í skák fer fram í vikunni og verður úrslitaskákin tefld á laugardaginn. Einungis tveir skákmenn hér á landi voru með 2500 Elo-stig þann 1. apríl og samkvæmt nýjustu tölum nær einungis einn þeim fjölda. Forseti Skáksambands Íslands hefur ekki áhyggjur af því.

Í dag keppa stórmeistararnir Vignir Vatnar Stefánsson, núverandi Íslandsmeistari, og Helgi Áss Grétarsson í níundu umferð af ellefu. Helgi keppir við Aleksandr Domalchuk-Jonasson og Vignir við Hilmi Frey Heimisson.

Í samtali við Vísi segir Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands dúndrandi stemningu fyrir leikjum dagsins. 

Fréttastofu hefur borist ábendingar um að aldrei hafi færri verið með yfir 2500 Elo-stig, sem er viðmiðið  fyrir eðlilegan styrkleika stórmeistara í íþróttinni. Fyrsta dag hvers mánaðar tekur Skáksambandið saman hvaða skákmenn hér á landi séu yfir 2500 stiga markinu. 

Vignir Vatnar og Olga Prudnykova. Skáksamband Íslands

Gunnar staðfestir að tveir menn hafi mælst yfir 2500 stigunum í byrjun mánaðar, en einn hafi farið niður fyrir þau í Íslandsmeistaramótinu og hætt keppni. Hinn Hjörvar Steinn Grétarsson, hafi um stund farið undið 2500 stig en sé aftur kominn með slétt 2500. 

Tæknilega séð hafi þá enginn Íslendingur verið undir viðmiðinu um stund samkvæmt rauntímaskráningu á „Ratings“ en staðan sem birt er í upphafi mánaðar sé alla jafna sú sem telur. 

Gunnar segir að áður hafi á bilinu fjórir til fimm verið yfir 2500 stigunum en nú séu þeir aðeins færri. Sú staða hafi aldrei komið upp að enginn sé á eða yfir viðmiðinu. Þetta sé þó ekki áhyggjumál, hann eigi síður von á að enginn nái viðmiðinu fyrir fyrsta maí. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×