Handbolti

Óðinn Þór bikar­meistari í Sviss

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Landsliðsmaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson átti frábæran leik í dag þegar hann varð svissneskur bikarmeistari.
Landsliðsmaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson átti frábæran leik í dag þegar hann varð svissneskur bikarmeistari. Vísir/Vilhelm

Hornamaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson er svissneskur bikarmeistari í handbolta. Þá unnu lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar unnu mikilvægan sigur í úrslitakeppni danska handboltans.

Óðinn Þór og félagar í Kadetten Schaffhausen urðu í dag bikarmeistarar eftir sigur á Basel í úrslitaleik svissnesku bikarkeppninnar, lokatölur leiksins 38-33.

Óðinn Þór var að venju gríðarlega öflugur í liði Kadetten. Hann var markahæstur allra á vellinum með 9 mörk og klikkaði ekki á skoti. Þrjú markanna komu af vítalínunni.

Þetta var í 10. skipti sem Kadetten verðr bikarmeistari. Þá er liðið komið í undanúrslit úrslitakeppninnar í Sviss eftir að hafa orðið deildarmeistari.

Í Danmörku vann Fredericia fjögurra marka sigur á Ringsted, 29-25. Einar Þorsteinn Ólafsson komst ekki á blað í leiknum.

Lærisveinar Guðmundar eru nú með tvo sigra að loknum fimm leikjum í 3. sæti í umspilsriðli tvö. Efstu tvö liðin úr hverjum riðli fara áfram í undanúrslit dönsku úrvalsdeildarinnar. Þarf Fredericia sigur á GOG í lokaumferðinni til að komast í undanúrslitin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×