Handbolti

Sigrar hjá Ís­lendinga­liðunum

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson er að gera gott mót.
Guðjón Valur Sigurðsson er að gera gott mót. Getty Images/Tom Weller

Íslendingalið Gummersbach og Melsungen unnu leiki sína í þýsku úrvalsdeild karla í handbolta.

Lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach unnu Wetzlar með sjö marka mun, lokatölur 35-28. Arnór Snær Óskarsson og Elliði Snær Viðarsson skoruðu báðir fjögur mörk í leiknum. Gummersbach hefur nú unnið fimm leiki í röð og er í 6. sæti með 35 stig að loknum 29 leikjum.

Melsungen vann tveggja marka sigur á Füchse Berlin, lokatölur 30-28. Elvar Örn Jónsson skoraði tvö mörk og gaf jafn margar stoðsendingar. Arnar Freyr Arnarsson skoraði tvö mörk og gaf eina stoðsendingu.

Melsungen er í 5. sæti með 40 stig, jafn mörg og Kiel sem er sæti ofar með tvo leiki til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×