Sýrland Skutu nánast alla dróna og eldflaugar niður Ráðamenn í Ísrael segja að um 99 prósent af þeim þrjú hundruð drónum og eldflaugum sem Íranar skutu að landinu í gærkvöldi og í nótt hafi verið skotnar niður. Skaðinn er tiltölulega lítill, miðað við umfang árásarinnar. Erlent 14.4.2024 09:49 Æðsti klerkurinn heitir Ísraelum enn hefndum Ísraelum verður refsað fyrir loftárás sem felldi sjö íranska hermenn á ræðisskrifstofu Írans í Sýrlandi fyrr í þessum mánuði, að sögn æðsta klerks og leiðtoga Írans. Utanríkisráðherra Ísraels hótar árásum á Íran á móti. Erlent 10.4.2024 10:10 Íranar hóta hefndum gegn Ísrael Klerkastjórnin í Íran og vígahópar á snærum þeirra hafa hótað hefndum eftir loftárás á ræðismannsskrifstofu Íran í Damaskus í Sýrlandi í gær. Ísraelar hafa verið bendlaðir við árásina en í henni féllu háttsettur íranskur herforingi og sex aðrir hermenn. Erlent 2.4.2024 13:01 Minnst sjö drepin í sprengjuárás í Sýrlandi Minnst sjö voru drepin þegar sprengja sprakk í bíl á fjölmennum markaði í bænum Azaz í Aleppó-héraði í norðurhluta Sýrlands snemma í morgun. Nokkrir til viðbótar særðust í árásinni. Enn er óvitað hver ber ábyrgð á árásinni en svæðinu er stjórnað af tyrkneskum vígahópum sem berjast gegn Bashar Al-Assad forseta Sýrlands. Erlent 31.3.2024 10:17 Nærri fjörutíu taldir af eftir loftárásir Ísraela á Sýrland Minnst 38 eru taldir af eftir loftárásir Ísraelshers nærri borginni Aleppo í nótt. Meðlimir Hezbollah og óbreyttir borgarar eru sagði meðal hinna látnu. Erlent 29.3.2024 08:20 Tapaði enn og aftur áfrýjun gegn sviptingu ríkisborgararéttar Shamima Begum tapaði enn á ný áfrýjun gegn ákvörðun breskra stjórnvalda um að svipta hana ríkisborgararétti. Shamima fæddist í Bretlandi en gekk til liðs við hryðjuverkasamtökin Ríki Íslams í Sýrlandi fimmtán ára gömul árið 2015. Erlent 23.2.2024 12:03 Bandaríkin svara fyrir sig með loftárásum í Írak og Sýrlandi Bandaríski herinn hefur hafið loftárásir á herstöðvar tengdar írönskum vígasamtökum í Írak og Sýrlandi. Loftárásirnar eru svar Bandaríkjamanna við drónaárás sem varð þremur bandarískum hermönnum að bana fyrir viku síðan. Erlent 2.2.2024 21:57 Biden segist búinn að ákveða sig Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segist búinn að ákveða sig hvernig brugðist verði við drónaárás í Jórdaníu, þar sem þrír bandarískir hermenn létu lífið og minnst þrjátíu særðust. Forsvarsmenn hópsins sem gerði árásina segjast hættir að gera árásir á Bandaríkjamenn í bili. Erlent 30.1.2024 22:31 Ræða veru bandarískra hermanna í Írak Ráðamenn í Bandaríkjunum og Írak munu á næstunni hefja viðræður um að binda enda á bandalagið gegn Íslamska ríkinu, sem stofnað var til að berjast gegn vígamönnum hryðjuverkasamtakanna í Írak. Meðal þess sem ræða á um er hvort bandarískir hermenn verða áfram í landinu og þá hve umfangsmikil viðvera þeirra verður. Erlent 26.1.2024 14:59 Aukin átök og hækkandi spennustig í Mið-Austurlöndum Minnst fjórir meðlimir byltingarvarða íranska hersins voru drepnir í loftárás Ísraels á Damaskus, höfuðborgar Sýrlands í morgun. Nokkrir sýrlenskir hermenn voru einnig drepnir í árásinni að sögn íranskra yfirvalda. Erlent 20.1.2024 23:43 Felldu háttsettan byltingarvörð í loftárás í Damaskus Ísraelar gerðu í morgun loftárás á Damaskus, höfuðborg Sýrlands, og eru þeir sagðir hafa fellt minnst einn háttsettan meðlim byltingarvarða íranska hersins. Ísraelar gera reglulega árásir í Sýrlandi, sem beinast iðulega gegn Írönum þar, en árásir að degi til eru sjaldgæfar. Erlent 20.1.2024 10:03 Fordæma „gáleysislega og ónákvæma árás“ í Erbil Bandaríkin hafa fordæmt loftárás Íran nærri írösku borginni Erbil í gær og segja hana „gáleysislegarog ónákvæma árás.“ Erlent 16.1.2024 07:41 Drápu háttsettan leiðtoga Hesbollah Ísraelar felldu í morgun einn af yfirmönnum Hesbollah-samtakanna í loftárás í suðurhluta Líbanon. Wissam Tawill stýrði úrvala hópi vígamanna og er æðsti leiðtogi Hesbollah sem felldur er af Ísraelum frá því átökin hófust fyrir botni Miðjarðarhafsins í október. Erlent 8.1.2024 15:41 Fordæma Bandaríkjamenn vegna drónaárásar í Baghdad Ríkisstjórn Íraks fordæmdi í gær drónaárás Bandaríkjamanna í Baghdad, höfuðborg landsins, í gærmorgun. Í árásinni féll leiðtogi vopnahóps sem tengist yfirvöldum í Íran og öryggissveitum Íraks. Sá er sagður hafa skipulagt fjölmargar árásir á bandaríska hermenn í Írak. Erlent 5.1.2024 12:13 Íranskir hermenn féllu líklega í árásum Bandaríkjamanna Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna birti í gærkvöldi myndbönd af loftárásum hersins á byltingarverði Íran og vígahópa sem Írans styður í austurhluta Sýrlands á dögunum. Árásirnar voru gerðar vegna ítrekaðra árása meðlima vígahópa í Írak og Sýrlandi á bandaríska hermenn þar. Erlent 15.11.2023 10:29 Varpa enn sprengjum á byltingarverði í Sýrlandi Bandaríkjamenn gerðu í gærkvöldi aftur loftárásir gegn Írönum og vígahópum sem þeir styðja í Sýrlandi. Sprengjum var varpað á vopnageymslu byltingarvarða Írans og á þjálfunarmiðstöð í austurhluta landsins en þetta er í þriðja sinn á rúmum tveimur vikum sem Bandaríkjamenn gera slíkar árásir. Erlent 13.11.2023 12:02 Áfram árásir á Bandaríkjamenn í Írak og Sýrlandi Minnst þrjár árásir voru gerðar á bandaríska hermenn í Írak í dag og minnst ein í Sýrlandi í gærkvöldi. Enginn er sagður hafa fallið í þessum árásum. Bandaríkjamenn vörpuðu í gær sprengjum á vopnageymslu byltingarvarða Íran í Sýrlandi í gær og var það gert vegna fjölda árásá vígahópa sem Íranar styðja á bandaríska hermenn í Írak og Sýrlandi. Erlent 9.11.2023 23:38 Vörpuðu sprengjum á byltingarverði í Sýrlandi Bandaríkjamenn gerðu í kvöld loftárásir í austurhluta Sýrlands, sem sagðar eru hafa beinst gegn byltingarvörðum Írans og vígahópum sem Íran styður. Þá var bandarískur dróni skotinn niður af Hútum yfir Rauðahafinu. Erlent 8.11.2023 23:09 Málaliðar Wagner færa Hezbollah loftvarnarkerfi Málaliðhópurinn rússneski, Wagner Group, er sagður ætla að senda hryðjuverkasamtökunum Hezbollah í Líbanon rússneskt loftvarnarkerfi, með mögulegri aðstoð Bashar al-Assad, forseta Sýrlands. Óttast er að Hezbollah ætli að opna nýja víglínu gegn Ísrael í norðurhluta landsins. Erlent 3.11.2023 11:43 Bandaríkjamenn gera árásir á skotmörk í Sýrlandi Bandaríski herinn gerði loftárásir á tvö skotmörk í Sýrlandi tengd Byltingarvarðsveit Íran (e. Revolutionary Guard Corps) nú í morgun. Reuters hefur eftir heimildarmanni að um hafi verið að ræða vopna- og skotfærageymslur. Erlent 27.10.2023 06:22 Árásir gerðar á herstöðvar Bandaríkjanna Bandarískir hermenn eru sagðir hafa slasast lítillega í drónárásum á herstöðvar Bandaríkjanna í Írak í gær. Tveimur drónum var flogið að al Asad flugstöðinni í vesturhluta Íraks og einum að annarri herstöð í norðurhluta landsins. Erlent 19.10.2023 14:20 Meintur „Bítill ISIS“ gengst við hryðjuverkastarfsemi Maður sem grunaður er um að hafa verið einn af „Bítlum Íslamska ríkisins“, hefur játað aðild að hryðjuverkastarfsemi fyrir dómi í Bretlandi. Aine Leslie Davis játaði í morgun að hafa borið skotvopn í hryðjuverkatilgangi og gekkst hann einnig við tveimur ákærum um að hafa fjármagnað hryðjuverkastarfsemi. Erlent 16.10.2023 11:49 Ísraelar hæfðu flugvöllinn í Aleppo í loftárás Ísraelar eru sagðir hafa hæft Aleppo-flugvöll í Sýrlandi í loftárás. Talið er að loftárásin eigi að trufla íranskt birgðakerfi til Sýrlands. Erlent 14.10.2023 22:00 Síðustu dagar Prígósjíns: Kepptist við að halda veldi sínu saman Rússneski auðjöfurinn Jevgení Prígósjín, sem stofnaði og fjármagnaði meðal annars málaliðahópinn Wagner Group, varði sínum síðustu dögum á flakki um heiminn og reyndi að halda lífi í viðskiptaveldi sínu í Afríku og Mið-Austurlöndum. Varnarmálaráðuneyti Rússlands beitti hann miklum þrýstingi og var að bola Wagner út. Erlent 28.8.2023 11:19 Leita enn réttlætis áratug eftir efnavopnaárás Assads Íbúar í Ghouta, úthverfi Damaskusar, eru gramir yfir því að enginn hafi verið látinn sæta ábyrgð á efnavopnaárás sýrlenska stjórnarhersins sem varð á annað þúsund manns að bana árið 2013. Þvert á móti sé Bashar al-Assad, forseti, aftur boðinn velkominn í alþjóðasamfélagið. Erlent 22.8.2023 21:01 Rússar skemmdu bandarískan dróna með blysum Rússneskir flugmenn tveggja orrustuþota eru sagðir hafa skemmt bandarískan dróna yfir Sýrlandi með því að varpa blysum á hann. Atvikið átti sér stað þann 6. júlí en flugher Bandaríkjanna birti myndband af því í dag. Erlent 25.7.2023 14:34 Lítil pilla gefur Assad mikil völd Ein helsta ástæða þess að nágrannar Sýrlands eru tilbúnir til að hleypa Bashar al-Assad, forseta landsins, inn úr kuldanum snýr að flæði fíkniefna frá Sýrlandi. Ríkið framleiðir og leyfir framleiðslu gífurlegs magns af Captagon-amfetamínpillum en hundruð milljóna slíkra pilla hefur verið smyglað til Jórdaníu, Írak, Sádi-Arabíu og annara ríkja Mið-Austurlanda. Erlent 9.6.2023 22:31 Segir Tyrki hafa fellt leiðtoga ISIS Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, segir tyrknesku leyniþjónustuna hafa fellt Abu Hussein al-Qurashi, sem sagður er hafa tekið við stjórn Íslamska ríkisins eftir að Abu Ibrahim al-Qurayshi lést í árás Bandaríkjamanna á heimili hans í febrúar í fyrra. Erlent 30.4.2023 22:39 ISIS-systur aftur komnar til Noregs Tvær systur frá Bærum í Noregi og þrjú börn þeirra hafa verið flutt frá Sýrlandi til Noregs. Konurnar tilheyra hóp sem kallaður hefur verið „eiginkonur ISIS“ en þær gengu til liðs við hryðjuverkasamtökin á árum áður. Erlent 30.3.2023 11:06 Gerðu loftárásir eftir mannskæða drónaárás Bandarískur verktaki féll í drónaárás í Sýrlandi í nótt þar sem skæruliðahópur studdur af stjórnvöldum í Íran notaðist við dróna frá ríkinu til árásarinnar á herstöð í norðausturhluta landsins. Annar verktaki og fimm bandarískir hermenn særðust í árásinni. Erlent 24.3.2023 10:07 « ‹ 1 2 3 4 5 6 … 18 ›
Skutu nánast alla dróna og eldflaugar niður Ráðamenn í Ísrael segja að um 99 prósent af þeim þrjú hundruð drónum og eldflaugum sem Íranar skutu að landinu í gærkvöldi og í nótt hafi verið skotnar niður. Skaðinn er tiltölulega lítill, miðað við umfang árásarinnar. Erlent 14.4.2024 09:49
Æðsti klerkurinn heitir Ísraelum enn hefndum Ísraelum verður refsað fyrir loftárás sem felldi sjö íranska hermenn á ræðisskrifstofu Írans í Sýrlandi fyrr í þessum mánuði, að sögn æðsta klerks og leiðtoga Írans. Utanríkisráðherra Ísraels hótar árásum á Íran á móti. Erlent 10.4.2024 10:10
Íranar hóta hefndum gegn Ísrael Klerkastjórnin í Íran og vígahópar á snærum þeirra hafa hótað hefndum eftir loftárás á ræðismannsskrifstofu Íran í Damaskus í Sýrlandi í gær. Ísraelar hafa verið bendlaðir við árásina en í henni féllu háttsettur íranskur herforingi og sex aðrir hermenn. Erlent 2.4.2024 13:01
Minnst sjö drepin í sprengjuárás í Sýrlandi Minnst sjö voru drepin þegar sprengja sprakk í bíl á fjölmennum markaði í bænum Azaz í Aleppó-héraði í norðurhluta Sýrlands snemma í morgun. Nokkrir til viðbótar særðust í árásinni. Enn er óvitað hver ber ábyrgð á árásinni en svæðinu er stjórnað af tyrkneskum vígahópum sem berjast gegn Bashar Al-Assad forseta Sýrlands. Erlent 31.3.2024 10:17
Nærri fjörutíu taldir af eftir loftárásir Ísraela á Sýrland Minnst 38 eru taldir af eftir loftárásir Ísraelshers nærri borginni Aleppo í nótt. Meðlimir Hezbollah og óbreyttir borgarar eru sagði meðal hinna látnu. Erlent 29.3.2024 08:20
Tapaði enn og aftur áfrýjun gegn sviptingu ríkisborgararéttar Shamima Begum tapaði enn á ný áfrýjun gegn ákvörðun breskra stjórnvalda um að svipta hana ríkisborgararétti. Shamima fæddist í Bretlandi en gekk til liðs við hryðjuverkasamtökin Ríki Íslams í Sýrlandi fimmtán ára gömul árið 2015. Erlent 23.2.2024 12:03
Bandaríkin svara fyrir sig með loftárásum í Írak og Sýrlandi Bandaríski herinn hefur hafið loftárásir á herstöðvar tengdar írönskum vígasamtökum í Írak og Sýrlandi. Loftárásirnar eru svar Bandaríkjamanna við drónaárás sem varð þremur bandarískum hermönnum að bana fyrir viku síðan. Erlent 2.2.2024 21:57
Biden segist búinn að ákveða sig Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segist búinn að ákveða sig hvernig brugðist verði við drónaárás í Jórdaníu, þar sem þrír bandarískir hermenn létu lífið og minnst þrjátíu særðust. Forsvarsmenn hópsins sem gerði árásina segjast hættir að gera árásir á Bandaríkjamenn í bili. Erlent 30.1.2024 22:31
Ræða veru bandarískra hermanna í Írak Ráðamenn í Bandaríkjunum og Írak munu á næstunni hefja viðræður um að binda enda á bandalagið gegn Íslamska ríkinu, sem stofnað var til að berjast gegn vígamönnum hryðjuverkasamtakanna í Írak. Meðal þess sem ræða á um er hvort bandarískir hermenn verða áfram í landinu og þá hve umfangsmikil viðvera þeirra verður. Erlent 26.1.2024 14:59
Aukin átök og hækkandi spennustig í Mið-Austurlöndum Minnst fjórir meðlimir byltingarvarða íranska hersins voru drepnir í loftárás Ísraels á Damaskus, höfuðborgar Sýrlands í morgun. Nokkrir sýrlenskir hermenn voru einnig drepnir í árásinni að sögn íranskra yfirvalda. Erlent 20.1.2024 23:43
Felldu háttsettan byltingarvörð í loftárás í Damaskus Ísraelar gerðu í morgun loftárás á Damaskus, höfuðborg Sýrlands, og eru þeir sagðir hafa fellt minnst einn háttsettan meðlim byltingarvarða íranska hersins. Ísraelar gera reglulega árásir í Sýrlandi, sem beinast iðulega gegn Írönum þar, en árásir að degi til eru sjaldgæfar. Erlent 20.1.2024 10:03
Fordæma „gáleysislega og ónákvæma árás“ í Erbil Bandaríkin hafa fordæmt loftárás Íran nærri írösku borginni Erbil í gær og segja hana „gáleysislegarog ónákvæma árás.“ Erlent 16.1.2024 07:41
Drápu háttsettan leiðtoga Hesbollah Ísraelar felldu í morgun einn af yfirmönnum Hesbollah-samtakanna í loftárás í suðurhluta Líbanon. Wissam Tawill stýrði úrvala hópi vígamanna og er æðsti leiðtogi Hesbollah sem felldur er af Ísraelum frá því átökin hófust fyrir botni Miðjarðarhafsins í október. Erlent 8.1.2024 15:41
Fordæma Bandaríkjamenn vegna drónaárásar í Baghdad Ríkisstjórn Íraks fordæmdi í gær drónaárás Bandaríkjamanna í Baghdad, höfuðborg landsins, í gærmorgun. Í árásinni féll leiðtogi vopnahóps sem tengist yfirvöldum í Íran og öryggissveitum Íraks. Sá er sagður hafa skipulagt fjölmargar árásir á bandaríska hermenn í Írak. Erlent 5.1.2024 12:13
Íranskir hermenn féllu líklega í árásum Bandaríkjamanna Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna birti í gærkvöldi myndbönd af loftárásum hersins á byltingarverði Íran og vígahópa sem Írans styður í austurhluta Sýrlands á dögunum. Árásirnar voru gerðar vegna ítrekaðra árása meðlima vígahópa í Írak og Sýrlandi á bandaríska hermenn þar. Erlent 15.11.2023 10:29
Varpa enn sprengjum á byltingarverði í Sýrlandi Bandaríkjamenn gerðu í gærkvöldi aftur loftárásir gegn Írönum og vígahópum sem þeir styðja í Sýrlandi. Sprengjum var varpað á vopnageymslu byltingarvarða Írans og á þjálfunarmiðstöð í austurhluta landsins en þetta er í þriðja sinn á rúmum tveimur vikum sem Bandaríkjamenn gera slíkar árásir. Erlent 13.11.2023 12:02
Áfram árásir á Bandaríkjamenn í Írak og Sýrlandi Minnst þrjár árásir voru gerðar á bandaríska hermenn í Írak í dag og minnst ein í Sýrlandi í gærkvöldi. Enginn er sagður hafa fallið í þessum árásum. Bandaríkjamenn vörpuðu í gær sprengjum á vopnageymslu byltingarvarða Íran í Sýrlandi í gær og var það gert vegna fjölda árásá vígahópa sem Íranar styðja á bandaríska hermenn í Írak og Sýrlandi. Erlent 9.11.2023 23:38
Vörpuðu sprengjum á byltingarverði í Sýrlandi Bandaríkjamenn gerðu í kvöld loftárásir í austurhluta Sýrlands, sem sagðar eru hafa beinst gegn byltingarvörðum Írans og vígahópum sem Íran styður. Þá var bandarískur dróni skotinn niður af Hútum yfir Rauðahafinu. Erlent 8.11.2023 23:09
Málaliðar Wagner færa Hezbollah loftvarnarkerfi Málaliðhópurinn rússneski, Wagner Group, er sagður ætla að senda hryðjuverkasamtökunum Hezbollah í Líbanon rússneskt loftvarnarkerfi, með mögulegri aðstoð Bashar al-Assad, forseta Sýrlands. Óttast er að Hezbollah ætli að opna nýja víglínu gegn Ísrael í norðurhluta landsins. Erlent 3.11.2023 11:43
Bandaríkjamenn gera árásir á skotmörk í Sýrlandi Bandaríski herinn gerði loftárásir á tvö skotmörk í Sýrlandi tengd Byltingarvarðsveit Íran (e. Revolutionary Guard Corps) nú í morgun. Reuters hefur eftir heimildarmanni að um hafi verið að ræða vopna- og skotfærageymslur. Erlent 27.10.2023 06:22
Árásir gerðar á herstöðvar Bandaríkjanna Bandarískir hermenn eru sagðir hafa slasast lítillega í drónárásum á herstöðvar Bandaríkjanna í Írak í gær. Tveimur drónum var flogið að al Asad flugstöðinni í vesturhluta Íraks og einum að annarri herstöð í norðurhluta landsins. Erlent 19.10.2023 14:20
Meintur „Bítill ISIS“ gengst við hryðjuverkastarfsemi Maður sem grunaður er um að hafa verið einn af „Bítlum Íslamska ríkisins“, hefur játað aðild að hryðjuverkastarfsemi fyrir dómi í Bretlandi. Aine Leslie Davis játaði í morgun að hafa borið skotvopn í hryðjuverkatilgangi og gekkst hann einnig við tveimur ákærum um að hafa fjármagnað hryðjuverkastarfsemi. Erlent 16.10.2023 11:49
Ísraelar hæfðu flugvöllinn í Aleppo í loftárás Ísraelar eru sagðir hafa hæft Aleppo-flugvöll í Sýrlandi í loftárás. Talið er að loftárásin eigi að trufla íranskt birgðakerfi til Sýrlands. Erlent 14.10.2023 22:00
Síðustu dagar Prígósjíns: Kepptist við að halda veldi sínu saman Rússneski auðjöfurinn Jevgení Prígósjín, sem stofnaði og fjármagnaði meðal annars málaliðahópinn Wagner Group, varði sínum síðustu dögum á flakki um heiminn og reyndi að halda lífi í viðskiptaveldi sínu í Afríku og Mið-Austurlöndum. Varnarmálaráðuneyti Rússlands beitti hann miklum þrýstingi og var að bola Wagner út. Erlent 28.8.2023 11:19
Leita enn réttlætis áratug eftir efnavopnaárás Assads Íbúar í Ghouta, úthverfi Damaskusar, eru gramir yfir því að enginn hafi verið látinn sæta ábyrgð á efnavopnaárás sýrlenska stjórnarhersins sem varð á annað þúsund manns að bana árið 2013. Þvert á móti sé Bashar al-Assad, forseti, aftur boðinn velkominn í alþjóðasamfélagið. Erlent 22.8.2023 21:01
Rússar skemmdu bandarískan dróna með blysum Rússneskir flugmenn tveggja orrustuþota eru sagðir hafa skemmt bandarískan dróna yfir Sýrlandi með því að varpa blysum á hann. Atvikið átti sér stað þann 6. júlí en flugher Bandaríkjanna birti myndband af því í dag. Erlent 25.7.2023 14:34
Lítil pilla gefur Assad mikil völd Ein helsta ástæða þess að nágrannar Sýrlands eru tilbúnir til að hleypa Bashar al-Assad, forseta landsins, inn úr kuldanum snýr að flæði fíkniefna frá Sýrlandi. Ríkið framleiðir og leyfir framleiðslu gífurlegs magns af Captagon-amfetamínpillum en hundruð milljóna slíkra pilla hefur verið smyglað til Jórdaníu, Írak, Sádi-Arabíu og annara ríkja Mið-Austurlanda. Erlent 9.6.2023 22:31
Segir Tyrki hafa fellt leiðtoga ISIS Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, segir tyrknesku leyniþjónustuna hafa fellt Abu Hussein al-Qurashi, sem sagður er hafa tekið við stjórn Íslamska ríkisins eftir að Abu Ibrahim al-Qurayshi lést í árás Bandaríkjamanna á heimili hans í febrúar í fyrra. Erlent 30.4.2023 22:39
ISIS-systur aftur komnar til Noregs Tvær systur frá Bærum í Noregi og þrjú börn þeirra hafa verið flutt frá Sýrlandi til Noregs. Konurnar tilheyra hóp sem kallaður hefur verið „eiginkonur ISIS“ en þær gengu til liðs við hryðjuverkasamtökin á árum áður. Erlent 30.3.2023 11:06
Gerðu loftárásir eftir mannskæða drónaárás Bandarískur verktaki féll í drónaárás í Sýrlandi í nótt þar sem skæruliðahópur studdur af stjórnvöldum í Íran notaðist við dróna frá ríkinu til árásarinnar á herstöð í norðausturhluta landsins. Annar verktaki og fimm bandarískir hermenn særðust í árásinni. Erlent 24.3.2023 10:07