Erlent

Skutu nánast alla dróna og eld­flaugar niður

Samúel Karl Ólason skrifar
Útlit er fyrir að Íranar hafi vonast til þess að nota drónana til að halda halda loftvörnum Ísraela uppteknum svo eldflaugarnar næðu þar í gegn.
Útlit er fyrir að Íranar hafi vonast til þess að nota drónana til að halda halda loftvörnum Ísraela uppteknum svo eldflaugarnar næðu þar í gegn. AP/Tomer Neuberg

Ráðamenn í Ísrael segja að um 99 prósent af þeim þrjú hundruð drónum og eldflaugum sem Íranar skutu að landinu í gærkvöldi og í nótt hafi verið skotnar niður. Skaðinn er tiltölulega lítill, miðað við umfang árásarinnar.

Í heildina er talið að Íranar hafi notast við 170 Shahed sjálfsprengidróna, rúmlega þrjátíu stýriflaugar og rúmlega 120 skotflaugar svokallaðar (e. Ballistic missile).

Ein sjö ára stúlka særðist alvarlega þegar brot úr skotflaug lenti á heimili fjölskyldu hennar en að öðru leyti er ekki vitað um að fólk hafi særst alvarlega.

Forsvarsmenn íranska hersins hafa heitið því að gera enn stærri árás á Ísrael, svari Ísraelar árásunum í nótt. Hjálpi Bandaríkjamenn Ísraelum við árásir á Íran, verði einnig gerðar árásir á bandaríska herstöðvar, samkvæmt frétt Reuters.

Sjá einnig: Neyðar­fundur hjá öryggis­ráði Sam­einuðu þjóðanna

Varnarmálaráðherra Ísrael sagði í morgun að deilunum við Írani væri ekki lokið enn.

Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segist ætla að boða leiðtoga G-7 ríkjanna á fund. Markmið þessa fundar væri að finna diplómatísk viðbrögð við árás Írana í gær. Eins og fram kemur í frétt AP gefur orðræða Bidens til kynna að hann hafi ekki áhuga á frekari árásum milli Ísrael og Íran.

Hér að neðan má sjá stutt myndband sem sýnir það þegar skotflaug frá Íran var grandað hátt á himni.

Til þess að skjóta skotflaugar niður notuðu Ísraelar Arrow 3 loftvarnarkerfið. Það er þróað sérstaklega til að skjóta niður skotflaugar sem geta verið búnar kjarnorkuvopnum fyrir utan gufuhvolf jarðarinnar.

Kerfið var fyrst prófað árið 2015 en Ísraelar segja það hafa sannað sig í gærkvöldi og í nótt.

Ísraelar og Íranar hafa eldað grátt silfur saman um árabil. Nokkuð hefur þó hitnað í kolunum á undanförnum mánuðum, samhliða stríðinu á Gasaströndinni.

Klerkastjórnin í Íran hefur stutt ýmissa hópa á Gasaströndinni og í Líbanon, eins og Hamas og Hesbollah sem barist hafa við Ísraela. Íranar hafa einnig stutt aðra hópa í Sýrlandi, Írak og í Jemen sem hafa á undanförnum mánuðum gert ítrekaðar árásir á bandaríska hermenn í Mið-Austurlöndum og flutningaskip á Rauðahafi.

Þáttaskil urðu þó á átökum ríkjanna nýverið þegar Ísraelar gerðu loftárás á ræðismannsskrifstofu Íran í Damaskus í Sýrlandi og felldu þar meðal annars tvo háttsetta herforingja úr íranska byltingarverðinum.

Ísraelar hafa ítrekað gert árásir á vígahópa tengda Íran og vopnasendingar Írana í Sýrlandi á undanförnum árum en viðurkenna það sjaldan sem aldrei. Þetta var í fyrsta sinn í mörg ár sem loftárás er gerð á svæði sem tilheyrir formlega Íran.

Skutu dróna niður með þotum yfir Sýrlandi

Árásin frá Íran hafði legið í loftinu um nokkuð skeið og herma heimildir fjölmiðla ytra að Ísraelar hafi verið vel undirbúnir fyrir hana og hafi notið stuðnings Bandaríkjamanna og Breta.

Útlit er fyrir að Íranar hafi vonast til þess að nota drónana til að halda halda loftvörnum Ísraela uppteknum svo eldflaugarnar næðu þar í gegn. Fljúga þurfti drónunum þó langa vegalengd frá Íran til Ísrael og höfðu Ísraelar og Bandaríkjamenn mikinn tíma til að bregðast við þeim.

Margir af drónunum frá Íran voru til að mynda skotnir niður af ísraelskum, breskum og bandarískum flugmönnum yfir Sýrlandi. Þá voru margar stýri- og eldflaugar skotnar niður af loftarnarkerfum fyrir utan lofthelgi Ísrael.

Daniel Hagari, einn talsmanna ísraelska hersins, segir að enginn dróni og engin stýriflaug hafi náð til Ísrael. Einungis nokkrar skotflaugar hefðu komist í gegnum varnir Ísraela og valdið takmörkuðum skaða á herstöð.


Tengdar fréttir

Ísland fordæmir árásina

Ísland fordæmir árás Írana á Ísrael. Þetta kemur fram í færslu Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra í færslu á samfélagsmiðlinum X. Utanríkisráðuneytið hefur beðið Íslendinga í Ísrael að láta vita af sér. 

Íranskir sérsveitarmenn tóku stjórn á flutningaskipi

Hermenn frá Byltingarvörðum Írans tóku í morgun stjórn á flutningaskipi nærri Hormuz-sundi. Skipinu var í kjölfarið siglt inn í landhelgi Írans en skipið er sagt tengjast Ísrael, þó því sé siglt undir fána Portúgal.

Óttast að Íran gæti ráðist á Ísrael á allra næstunni

Bandaríkjastjórn segir meiriháttar árás Írana á Ísrael gæti verið yfirvofandi. Spenna á milli ísraelska og íranskra stjórnvalda hefur stigmagnast eftir að íranskur herforingi var felldur í loftárás í Sýrlandi fyrir hálfum mánuði.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×