Tónlist

Lengsti plötusamningur Íslandssögunnar

Bubbi Morthens ásamt umboðsmanni sínum Páli Eyjólfssyni, sem mun annast útgáfustjórn á plötum Bubba.
Bubbi Morthens ásamt umboðsmanni sínum Páli Eyjólfssyni, sem mun annast útgáfustjórn á plötum Bubba. MYND/Stefán

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens hefur undirritað tímamótasamning við Senu um útgáfu að minnsta kosti tíu nýrra platna á næstu tíu til fimmtán árum. Um er að ræða lengsta plötusamning Íslandssögunnar.

Plöturnar koma út undir merkjum nýs útgáfufyrirtækis, Blindsker, sem stofnað var í tengslum við útgáfuna. Sena eignast jafnframt útgáfuréttinn á öllum hljóðritunum Bubba.

Ég er búinn að semja efni á nýja plötu sem ég ætla að byrja vonandi að taka upp í janúar eða febrúar. Ég hef grun um það að það verði mjög hrá rokkplata, segir Bubbi. Svo á ég gróflega efni á fjórar til fimm plötur. Ég hef ekki orðið var við heilabilanir eða neitt því um líkt, þannig að ég er á því ég verði í helvíti góðu standi alla vega næstu, segjum fjörutíu árin. Ég er búinn að strengja þess heit að ég mun spila svo lengi sem ég get labbað inn á svið. Mér finnst það göfugt markmið að taka menn eins og Johnny Lee Hooker og Johnny Cash mér til fyrirmyndar, segir Bubbi.

Samningurinn nær einnig út fyrir landssteinana. Ég á helling af lögum á dönsku og það getur vel verið að við bætumst í þetta lið sem er að bögga Dani þessa dagana, segir hann.

Í gær komu einnig út á tvöföldum geisladiski og DVD-mynddiski vel heppnaðir afmælistónleikar Bubba frá því í sumar, 06.06.06.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×