Bætist við dagskrá Iceland Airwaves 15. ágúst 2006 13:30
Dagskrá tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves, sem fram fer í miðborg Reykjavíkur daganna 18-22 október, er óðum að taka á sig mynd. Þegar er búið að tilkynna um 70 listamenn og hljómsveitir sem koma munu fram á hátíðinni og nú eru kynntir til leiks tæplega 30 flytjendur til viðbótar. Má þar nefna í bandarísku indí rokksveitina We are Scientists, norsku rafrokkarana í Datarock og nýjustu hljómsveit Kings of Convenience hetjunnar Erlend Øye, The Whitest Boy Alive. Tvær síðastnefndu sveitarinnar spila á hátíðinni undir formerkunum 'Hear Norway at Iceland Airwaves' sem er samvinnuverkefni Hr. Örlygs, Icelandair og Norska menningar- og kirkjumálaráðuneytisins. Um hljómsveitirnar: Eftir að hafa gefið út tvær breiðskífur á eigin vegum fékk New York sveitin We are Scientists loks plötusamning hjá plöturisanum EMI/Virgin í fyrra og afraksturinn, breiðskífan With Love and Squalor, hefur gengið vel í tónlistarspekúlanta víða um heim. Sveitin hefur farið mikinn í ár - m.a. trúrað með Arctic Monkeys, Maximo Park og Mystery Jets - og er á leið í heljarinnar tónleikaferð um Bretland eftir stopp þeirra á Iceland Airwaves. Erlend Øye, sem gerði garðinn frægan með Kings of Convenience og sögspýra fyrir Royksopp í lögunum 'Remind Me' og 'Poor Leno', auk þess að hafa sett saman eitt rosalegasta DJ sett sögunar í safnplötuseríunni DJ Kicks, er fluttur til Berlínar þar sem hann er búin að stofna hljómsveitina The Whitest Boy Alive. Hún er nýbúin að gefa út plötuna Dreams og hlakkar þeim félögum mikið til að kynna hana á Iceland Airwaves 2006. Líkt og Erlend og félagar hans í Kings of Convenience kemur Datarock frá Bergen. Hér er á ferðinni eitt skemmtilegasta fyrirbæri sem norsk popptónlist hefur alið af sér enda hefur frumburður sveitarinnar 'Datarock Datarock' fengið frábæra dóma innan sem utan Noregs. Tónlist sveitarinnar hefur verið líkt við verk Devo, Talking Heads og Happy Mondays. Þeir verða í feikna stuði á Airwaves, sem og bandaríska elektró tríóið Walter Meego sem kemur frá Chicago. Walter Meego hefur deilt sviði með listamönnum á borð við Cut Copy, Hard-Fi, Hot Chip, DJ Vadim og Tom Vek, nýjasta EP plata þeirra lagðist vel í hippstera Lundúna og var vinsælasta 'import platan' í Rough Trade verslununum í fyrra og eru þeir með breiðskífu í vinnslu. New York dúóðið The Handsome Public verða eitt aðalnúmerið á opnunarkvöldi hátíðarinnar, en frumburður þeirra, 'Caged Heat EP', kemur út um svipað leiti og Airwaves. Í kjölfar framkomu þeirra á hátíðinni hyggja þeir síðan á tónleikaferð um Evrópu. Meðal þeirra innlendu listamanna sem nú bætast við daskrá Airwaves er hip hop sveitin Original Melody, pönkbandið Æla sem var nýlega að gefa út sína fyrstu breiðskífu, retro-latin-surf-soul-powerpop nýliðarnir í Retro Stefsson [mynd] og Hafdís Huld sem mun í október senda frá sér sína fyrstu sóló breiðskífu; Dirty Paper Cups. Einnig eru nokkrir plötusnúðar komnir inn á dagkrá hátíðarinnar og má þar nefna teknó kólfinn Exos, diskóboltann Dj Margeir Breakbeat.is fastanúðana alræmdu DJ Kalla, DJ Leopold og Ewok og hinn íslensk ættaði ameríkani DJ Platurn sem m.a. hefur troðið upp með Mixmaster Mike, Afrikaa Baambaata og Rob Swift. Erlendir listamenn sem nú bætast við dagskrána eru Datarock (NO), Handsome Public (US), Walter Meego (US), We are Scientists (US) og The Whitest Boy Alive (NO/DE). Innlendir listamenn sem nú bætast við dagskrána eru, Cynic Guru, Dýrðin, Hafdís Huld, Morðingjarnir, Nine Elevens, Nortón, Our Live, Original Melody, Retro Stefson, Ultra Mega Technobandið Stefán, The Zuckakis Mondeyano Project Coctail Vomit og Æla. Plötusnúðar sem nú bætast við dagskrána Alfons X, Ewok, Exos, DJ Kalli, DJ Leopold, DJ Óli Ofur, Margeir og DJ Platurn (US). Frekari upplýsingar um alla þessa listamenn, tilvísarnir í vefsíður o.fl. er að finna á icelandairwaves.com.
Airwaves Lífið Menning Tónlist Mest lesið Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Lífið Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Lífið Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 Lífið Öll með aðstöðu til að fagna sigri með stuðningsmönnum Lífið „Blessunarlega ekkert stoppaður af foreldrum mínum“ Tíska og hönnun Hönnunarhús Markúsar Mána og Kristínar til sölu Lífið „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Lífið Hafa ekki sést saman í sjö vikur Lífið Andri og Erla selja í Seljunum Lífið Setja upp söngleiki, leikrit og tónleika í Háskólabíó í sumar Lífið Fleiri fréttir Segir skásta staðinn í bænum í kirkjugarðinum Iceland Airwaves kynnir 22 ný bönd til leiks „Þægileg blanda af von og trega“ Kom fram sem stórstjarna „Drull sama hvað einhver apaköttur segir“ Laufey tók lagið hjá Jimmy Fallon „Svo hræðilega óyfirstíganlegt að ég þurfti að rífa plásturinn af“ „Þetta styrkti mig rosalega en þetta braut mig líka“ Gítarleikarinn Duane Eddy er látinn MANOWAR til Íslands í fyrsta sinn „Fer ekki á milli mála að ég er að syngja um stráka“ Fögnuðu íslenskri tónlist við fjöruga opnun Seldi upp á útgáfutónleika án útgáfu „Það má segja að þetta sé í raun sorg og uppgjör“ Kom öllum að óvörum með fleiri lögum í nótt Sest við flygilinn og setur íslenska tónlist í nýjan búning Biðst afsökunar á brösuglegum Coachella-flutningi „Eina sem maður getur virkilega bætt í lífinu er maður sjálfur“ „Ég hef aldrei fylgt reglunum“ Uppselt í þriðja sinn á augabragði Íslandsvinurinn Yung Lean setur stefnuna á risatónleika í Hörpu Inga Sæland með sumarsmell í vasanum Fullur tilhlökkunar fyrir nýjum kafla Nick Cave til Íslands Emelíana Lillý úr FNV vann Söngkeppni framhaldsskólanna Tók símtalið á pabba fyrir Herbert Sjá meira