Formúla 1

Schumacher þénar sem aldrei fyrr

Michael Schumacher rakar inn peningum þó sigrunum fækki á kappakstursbrautinni
Michael Schumacher rakar inn peningum þó sigrunum fækki á kappakstursbrautinni NordicPhotos/GettyImages

Þó þýski ökuþórinn Michael Schumacher hafi oft verið í betri málum á kappakstursbrautinni virðist hann enn halda góðum dampi hvað varðar tekjur. Schumacher tekur gott stökk á lista tekjuhæsta fólks úr röðum skemmtikrafta og íþróttamanna á nýútkomnum lista Forbes.

Forbes setur Schumacher inn á topp 20 yfir tekjuhæsta "fræga fólkið" í heiminum í ár. Kvikmyndaleikstjórinn Steven Spielberg er langhæstur á þessum lista með yfir 330 milljónir dollara í tekjur á árinu. Schumacher er sagður hafa rakað inn um 60 milljónir dollara sem kemur honum í 15. sæti listans.

Á listanum yfir "áhrifamesta fólkið" er Schumacher aðeins í 30. sæti, en nær þó 6. sæti þess lista ef aðeins er litið til íþróttamanna - á eftir fólki eins og Muhammed Ali, Tiger Woods og Michael Jordan. Athygli vekur að Michael Schumacher er tekjuhæsti íþróttamaður heims sem ekki hefur íþróttavöruframleiðandann Nike sem styrktaraðila.

Ekki er langt síðan bandaríska blaðið Sports Illustrated birti svipaðan lista, en þar voru tekjur Schumacher sagðar mun hærri, eða um 80 milljónir dollara. Þar toppaði þýski ökuþórinn fólk á borð við Ronaldinho, Mariu Sharapovu og David Beckham - á meðan Tiger Woods var langefstur bandarískra íþróttamanna með rétt tæpar 100 milljónir dollara í tekjur.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×