Formúla 1

Eig­andi For­múlu 1 festir kaup á MotoGP

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Jorge Martin og Marc Marquez, tveir af fremstu ökuþórum íþróttarinnar.
Jorge Martin og Marc Marquez, tveir af fremstu ökuþórum íþróttarinnar. Diogo Cardoso/DeFodi Images via Getty Images

Liberty Media, bandaríska fjölmiðlasamsteypan sem á Formúlu 1, hefur gengið frá kaupum á mótorhjólakappakstrinum MotoGP. 

Liberty Media hefur átt meirihluta í Formúlu 1 frá því árið 2017 og kom meðal annars í framkvæmd sjónvarpsþáttunum Drive to Survive sem notið hafa mikilla vinsælda á Netflix frá frumsýningu árið 2018. 

Nú hefur samsteypan gengið frá kaupum á 86 prósent eignarhlut í MotoGP af Dorna Sports, sem hefur átt MotoGP síðan 1992. 

MotoGP stendur fyrir kappökstrum á mótorhjólum. Stofnað árið 1949, þá með aðeins sex kappakstra á ári, í dag eru tuttugu keppnir árlega sem dreifast á fimm heimsálfur. Jorge Martin er ríkjandi heimsmeistari. 

Greg Maffei, forstjóri Liberty Media, var hæstánægður með kaupin og sagði fyrirtækið ætla að leggja metnað í vöxt íþróttarinnar á alþjóðavísu, þeim hafi gengið vel að auka vinsældir Formúlu 1 og leggi nú af stað með svipað plan fyrir MotoGP. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×