Formúla 1

Ver­stappen efstur á óska­lista Mercedes: Um­mæli Toto kynda undir sögu­sagnir

Aron Guðmundsson skrifar
Max Verstappen er afar sigursæll ökumaður. Sá besti í Formúlu 1 þessi dægrin. 
Max Verstappen er afar sigursæll ökumaður. Sá besti í Formúlu 1 þessi dægrin.  Vísir/Getty

Þre­faldi heims­meistari öku­manna, Hollendingurinn Max Ver­stappen, er fyrsti maður á lista hjá Mercedes yfir þá öku­menn sem liðið vill fá til liðs við sig til að fylla upp í skarð Lewis Hamilton á næsta tíma­bili. Um­mæli Toto Wolff, fram­kvæmda­stjóra For­múlu 1 liðs Mercedes um Ver­stappen hafa vakið mikla at­hygli og virkað sem olía á eld orð­róma.

Sjöfaldi heimsmeistarin Lewis Hamilton er á leið yfir til Ferrari eftir yfirstandandi tímabil og það sér til þess að Mercedes er nú í leit að ökumanni til þess að mynda ökumannsteymi liðsins með Bretanum George Russell. 

Þó nokkrir ökumenn hafa verið orðaðir við ökumannssætið hjá Mercedes. Þeirra á meðal er reynsluboltinn Fernando Alonso, samlandi hans Carlos Sainz sem víkur fyrir Hamilton hjá Ferrari og téður Max Verstappen sem hefur ráðið lögum og lofum í Formúlu 1 undanfarin tímabil. 

Toto Wolff, framkvæmdastjóri Mercedes Vísir/Getty

Toto Wolff var spurður út í möguleikann á því að Verstappen yrði ökumaður Mercedes og það er ekki annað hægt að segja en að svar hans hafi vakið athygli.

„Þetta er þannig tegund af samstarfi að það þarf að eiga sér stað á einhverjumn tímapunkti. Við vitum hins vegar ekki hvenær,“ svaraði Toto sem þekkir Verstappen feðgana frá fyrri tíð í undirmótaröðum Formúlu 1.

„Það er laust sæti hjá okkur. Eina lausa sætið hjá einu af toppliðum Formúlu 1, ekki nema að Max ákveði að halda frá Red Bull. Þá er okkar sæti ekki enn á lausu.“

Verstappen og Hamilton elduðu grátt silfur saman tímabilið ótrúlega þar sem að Verstappen hafði að lokum betur í baráttunni um heimsmeistaratitil ökumanna á síðasta hring í síðustu keppni ársins. 

Glæst saga Hamilton hjá Mercedes mun að eilífu vera meitluð í stein en hins vegar gæti það ekki talið vera annað en áfall fyrir hann að sjá sinn allra helsta erkióvin fylla upp í sæti sitt hjá þýska risanum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×