Formúla 1

Munu ekki standa í vegi fyrir Verstappen vilji hann fara

Aron Guðmundsson skrifar
Þrír lykilstarfsmenn Formúlu 1 liðs Red Bull Racing. Hér sést Max Verstappen ræða við Helmut Marko (til vinstri) eftir sigur í Sádi-Arabíu um nýliðna helgi. Með þeim er liðsstjórinn Christian Horner (til hægri) liðsstjóri Red Bull Racing
Þrír lykilstarfsmenn Formúlu 1 liðs Red Bull Racing. Hér sést Max Verstappen ræða við Helmut Marko (til vinstri) eftir sigur í Sádi-Arabíu um nýliðna helgi. Með þeim er liðsstjórinn Christian Horner (til hægri) liðsstjóri Red Bull Racing Vísir/Getty

For­ráða­menn For­múlu 1 liðs Red Bull Ra­cing segjast ekki munu neyða þre­falda heims­meistara sinn, ökumanninn Max Ver­stappen, til þess að vera á­fram hjá liðinu út gildandi samning milli ökumannsins og liðsins sé það hans ósk að hverfa á braut.

Það er Motor­sport.com sem greinir frá en Ver­stappen hefur, líkt og Red Bull Ra­cing liðið í heild sinni, farið full­kom­lega af stað innan brautar að loknum fyrstu tveimur um­ferðum tíma­bilsins 2024. Eld­fimt á­stand utan brautar hefur hins vegar vakið upp spurningar um fram­tíð ein­stak­linga sem gegna lykil­hlut­verkum innan liðsins.

Samningur Ver­stappen við Red Bull Ra­cing gildir út tíma­bilið 2028. Fram­tíð Hollendingsins fljúgandi er hins vegar talin velta, að mjög miklu leiti, á fram­tíð Helmut Marko í starfi ráð­gjafa liðsins.

Marko á stóran þátt í upp­gangi Ver­stappen hjá Red Bull Ra­cing og á í sterkum og góðum tengslum við Hollendinginn sem og föður hans, Jos Ver­stappen.

Valdabarátta innan liðsins

Utan frá virðist mikil valda­bar­átta nú eiga sér stað innan Red Bull Ra­cing liðsins milli fylkinga Christian Horn­er, liðs­stjóra Red Bull annars vegar og Helmut Marko og Ver­stappen feðga hins vegar.

Horn­er sjálfur hefur verið mikið á milli tannanna á fólki undan­farnar vikur eftir að á­sakanir á hendur honum um óviðeigandi og stjórnandi hegðun í garð samstarfskonu hjá Red Bull Racing litu dagsins ljós. Horner neitaði sök og Red Bull samsteypan setti af stað innri rannsókn á málinu.

Niðurstaðan þeirrar rannsóknar var að láta málið niður falla. Fyrir helgi bárust svo fregnir af því að umræddri konu hefði verið sagt upp störfum hjá Red Bull Racing 

Reynt hefur verið að lægja öldurnar innan liðsins og yfir­lýsingar stríðandi fylkinga flogið á milli í fjöl­miðlum en spurningar­merkjunum um lið Red Bull Ra­cing virðist á sama tíma bara fjölga með hverri yfirlýsingunni.

Aðspurður um framtíð Max Verstappen, sem hefur undanfarna daga verið orðaður við lið Mercedes, sagði Horner að Red Bull Racing myndi ekki neyða Verstappen til þess að klára samning sinn hjá liðinu ef hann vildi yfirgefa það.

„Það gildir það sama um þetta og lífið sjálft. Maður neyðir ekki einhvern til þess að vera á einhverjum stað sem hann vill ekki vera á.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×