Formúla 1

Ver­stappen á­tján sætum á undan Hamilton á rá­spólnum á morgun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Max Verstappen var í stuði eins og  vanalega. Fimm keppnir, fimm ráspólar.
Max Verstappen var í stuði eins og  vanalega. Fimm keppnir, fimm ráspólar. Getty/Mark Thompson

Heimsmeistarinn Max Verstappen verður enn á ný á ráspólnum í kínverska formúlu 1 kappakstrinum sem fer fram í fyrramálið.

Þetta var mjög góð tímataka fyrir Red Bull liðið því liðsfélagi Verstappen, Sergio Perez, verður við hlið hans á ráspólnum.

Verstappen var 0,322 sekúndum á undan Perez.

Fernando Alonso hjá Aston Martin varð þriðji 0,166 sekúndum á eftir Perez. Næstir voru síðan Lando Norris og Oscar Piastri sem keyra báðir fyrir McLaren.

Þetta var aftur á móti slæmur dagur fyrir Lewis Hamilton sem ræsir í átjánda sætinu á morgun og er því ekki líklegur til að ná í mörg stig þessa helgina. Hamilton er eins og er í níunda sæti í keppni ökumanna sjö stigum á eftir Alonso sem er fyrir ofan hann.

Verstappen hefur verið ráspól í öllum fimm kappökstrum ársins og hefur unnið þrjár af fjórum keppnum tímabilsins. Verstappen er með fimmtán stiga forskot á liðsfélaga sinn Perez og með 21 stigi meira en Charles Leclerc sem er þriðji í keppni ökumanna.

Kínverski kappaksturinn hefst klukkan 6.30 í fyrramálið á Vodafone Sport stöðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×